Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands er áætlað að 205.200 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í apríl 2018, sem jafngildir 81,9% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 196.000 starfandi og 9.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,3% en hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,5%.
Samanburður mælinga fyrir apríl 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst um 6.700 manns en hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 1,1 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 3.400 manns en hlutfall þeirra af mannfjölda lækkaði um 2,3 prósentustig.
Atvinnulausir voru um 3.300 fleiri en á sama tíma árið 2017 og hlutfall þeirra hækkaði um 1,5 prósentustig. Alls voru 45.300 utan vinnumarkaðar í apríl 2018 og hafði þeim fjölgað um 4.800 manns frá því í apríl 2017 þegar þeir voru 40.500.
Hér ber að geta þess að mælingin í apríl 2017 var óvenjuleg að því leyti að atvinnuleysi mældist þá mjög lágt og hlutfall starfandi hátt miðað við aðra mánuði á fyrri helmingi ársins 2017. Þetta verður að hafa í huga við samanburð ámilli ára.
Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, apríl 2018
Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±1,6; karlar ±2,2; konur ±2,3.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 3,5% í apríl 2018
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 205.800 í apríl 2018. Atvinnuþáttaka var því 82,3% í apríl, og jókst um 0,3% frá því í mars. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í apríl var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 7.200 og jókst um 1.900 manns frá áætluðum fjölda í mars.
Hlutfall atvinnulausra hækkaði því úr 2,6% í mars 2018 í 3,5% í apríl 2018, eða um 0,9 prósentustig.
Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í apríl 2018 var 79,4%, sem er 0,5 prósentustigum lægra en það var í mars. Áætlaður fjöldi utan vinnumarkaðar lækkaði úr 44.900 í 44.200 á milli mánaða, eða um 700 manns.
Þrátt fyrir að einhverjar breytingar megi sjá bæði í mælingunni sjálfri og í árstíðaleiðréttum tölum þá sýnir leitni hlutfalls síðustu sex mánaða að allar vinnuaflstölur standa nánast í stað. Hvort heldur sem litið er til atvinnuþátttöku, hlutfalls starfandi, atvinnuleysis eða vinnustunda.
Framkvæmd
Apríl 2018 í vinnumarkaðsrannsókninni nær til fjögurra vikna, frá 2. apríl til og með 28. apríl. Í úrtak völdust af handahófi 1.553 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.520 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 964 einstaklingum sem jafngildir 63,4% svarhlutfalli.
Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna fyrir apríl 2018 um atvinnuþátttöku eru ±2,3 prósentustig, hlutfall starfandi ±2,6 prósentustig og atvinnuleysi ±1,6 prósentustig. Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.
Tafla 1. Vinnumarkaður í apríl — mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2016 | (±95%) | 2017 | (±95%) | 2018 | (±95%) | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 83,8 | 2,3 | 83,0 | 2,6 | 81,9 | 2,3 |
Hlutfall starfandi | 79,7 | 2,6 | 80,6 | 2,7 | 78,3 | 2,6 |
Atvinnuleysi | 4,8 | 1,6 | 3,0 | 1,6 | 4,5 | 1,6 |
Vinnustundir | 39,6 | 1,3 | 38,3 | 1,5 | 39,6 | 1,2 |
Vinnuafl | 195.800 | 5.500 | 198.500 | 6.200 | 205.200 | 5.800 |
Starfandi | 186.300 | 6.100 | 192.600 | 6.600 | 196.000 | 6.400 |
Atvinnulausir | 9.500 | 3.200 | 5.900 | 2.800 | 9.200 | 3.200 |
Utan vinnumarkaðar | 37.900 | 5.500 | 40.500 | 6.200 | 45.300 | 5.800 |
Áætlaður mannfjöldi | 233.700 | • | 239.000 | • | 250.500 | • |
Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting | ||||||
nóv.17 | des.17 | jan.18 | feb.18 | mar.18 | apr.18 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 81,9 | 82,8 | 83,1 | 81,0 | 82,0 | 82,3 |
Hlutfall starfandi | 79,8 | 80,0 | 80,4 | 79,1 | 79,9 | 79,4 |
Atvinnuleysi | 2,5 | 3,4 | 3,3 | 2,3 | 2,6 | 3,5 |
Vinnustundir | 39,1 | 40,1 | 40,0 | 39,4 | 40,0 | 40,5 |
Vinnuafl | 201.600 | 204.300 | 205.200 | 200.600 | 204.900 | 205.800 |
Starfandi | 196.500 | 197.400 | 198.500 | 196.000 | 199.600 | 198.600 |
Atvinnulausir | 5.100 | 6.900 | 6.700 | 4.600 | 5.300 | 7.200 |
Utan vinnumarkaðar | 44.700 | 42.400 | 41.800 | 47.100 | 44.900 | 44.200 |
Áætlaður mannfjöldi | 246.300 | 246.600 | 247.000 | 247.700 | 249.800 | 250.000 |
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
nóv.17 | des.17 | jan.18 | feb.18 | mar.18 | apr.18 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 82,2 | 82,2 | 82,3 | 82,3 | 82,3 | 82,3 |
Hlutfall starfandi | 79,9 | 79,9 | 79,9 | 79,9 | 79,9 | 79,9 |
Atvinnuleysi | 2,9 | 2,9 | 2,9 | 2,9 | 2,9 | 2,9 |
Vinnustundir | 40,0 | 40,0 | 40,0 | 40,0 | 40,0 | 40,0 |
Vinnuafl | 201.500 | 202.200 | 202.800 | 203.200 | 203.200 | 203.600 |
Starfandi | 195.700 | 196.300 | 196.900 | 197.300 | 197.300 | 197.700 |
Atvinnulausir | 5.800 | 5.900 | 5.900 | 5.900 | 5.900 | 5.900 |
Utan vinnumarkaðar | 43.600 | 43.600 | 43.700 | 43.800 | 43.800 | 43.900 |
Áætlaður mannfjöldi | 245.000 | 245.800 | 246.500 | 247.000 | 247.000 | 247.500 |