Samkvæmt óleiðréttum mælingum voru að jafnaði 211.500 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í apríl 2019. Það jafngildir 83,0% (±2,2) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu reyndust 203.000 (±6.300) vera starfandi og 8.400 (±3.100) án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,6% (±2,5) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,0% (±1,5).

Samanburður mælinga fyrir apríl 2018 og 2019 sýnir að vinnuafli fjölgaði um 9.400 manns, á meðan hlutfall þess af mannfjölda hækkaði um 0,9 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 10.300 og hlutfallið hækkaði um 1,4 prósentustig, frá því á sama tíma árið 2018.

Atvinnulausir í apríl 2019 voru um 1.000 manns færri en á sama tíma árið 2018 þegar þeir voru 9.400 eða 4,6% af vinnuaflinu. Alls voru 43.500 utan vinnumarkaðar í apríl 2019 en höfðu verið 44.100 í apríl 2018.

Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var fjöldi fólks á vinnumarkaði 209.700 í apríl 2019. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 82,0%, sem er 0,2 prósentustigi lægri en í mars. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu voru atvinnulausir 6.100 í apríl, eða 2,9%, sem er 0,1 prósentustigi hærri en í mars. Fyrir sama tímabil lækkaði leiðrétt hlutfall starfandi fólks um 0,3 prósentustig, eða í 79,6% fyrir apríl 2019.

Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni að árstíðaleiðréttar vinnuaflstölur standa nánast alveg í stað. Hlutfall starfandi minnkaði lítillega eða um 0,1 prósentustig og atvinnuleysi jókst um 0,1 prósentustig.

Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði. Tölur fyrir apríl 2019 eru bráðabirgðatölur þar til öðrum ársfjórðungi lýkur.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, mars 2019 – Mæling Vinnumarkaður flæðirit apríl 2019

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±1,5; karlar ±2,1; konur ±2,1

Mánaðarlegt atvinnuleysi 16–74 ára

Mánaðarlegt hlutfall starfandi 16–74 ára

Mánaðarlegt hlutfall utan vinnumarkaðar 16–74 ára

Mánaðarlegt atvinnuleysi ungs fólks 16–24 ára

Tafla 1. Vinnumarkaður í apríl — mæling
Öryggisbil Öryggisbil Öryggisbil
 2017 (±95%)2018 (±95%)2019 (±95%)
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 83,0 2,6 82,1 2,3 83,0 2,2
Hlutfall starfandi 80,6 2,7 78,3 2,6 79,6 2,5
Atvinnuleysi 3,0 1,4 4,6 1,6 4,0 1,5
Vinnustundir 38,3 1,5 39,7 1,2 37,3 1,2
Vinnuafl 198.500 6.100 202.100 5.800 211.500 5.700
Starfandi 192.600 6.600 192.700 6.400 203.000 6.300
Atvinnulausir 5.900 2.800 9.400 3.200 8.400 3.100
Utan vinnumarkaðar 40.500 6.100 44.100 5.800 43.500 5.700
Áætlaður mannfjöldi 239.000 246.200 254.900

Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétting
 nóv.18des.18jan.19feb.19mar.19apr.19
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 82,4 80,9 81,9 81,2 82,2 82,0
Hlutfall starfandi 79,5 79,5 79,6 78,6 79,9 79,6
Atvinnuleysi 3,5 1,7 2,8 3,2 2,8 2,9
Vinnustundir 38,8 38,9 40,1 39,2 39,4 40,0
Vinnuafl 209.700 204.700 207.900 206.600 209.500 209.700
Starfandi 202.400 201.300 202.100 200.000 203.700 203.600
Atvinnulausir 7.400 3.500 5.700 6.500 5.800 6.100
Utan vinnumarkaðar 44.700 48.400 46.000 47.900 45.400 46.100
Áætlaður mannfjöldi 254.500 253.200 253.900 254.500 255.000 255.800

Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétt leitni
 nóv.18des.18jan.19feb.19mar.19apr.19
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 81,8 81,7 81,6 81,6 81,7 81,7
Hlutfall starfandi 79,6 79,5 79,4 79,4 79,5 79,5
Atvinnuleysi 2,6 2,7 2,7 2,7 2,7 2,7
Vinnustundir 39,2 39,3 39,4 39,5 39,5 39,6
Vinnuafl 206.600 207.100 207.600 207.700 207.700 208.000
Starfandi 201.200 201.600 201.900 202.000 202.100 202.500
Atvinnulausir 5.400 5.500 5.600 5.700 5.600 5.500
Utan vinnumarkaðar 46.100 46.400 46.700 46.700 46.600 46.500
Áætlaður mannfjöldi 252.700 253.500 254.200 254.400 254.400 254.500

Um gögnin
Vinnumarkaðsrannsóknin í apríl 2019 nær til fjögurra vikna, frá 1. apríl til og með 28. apríl 2019. Í úrtak völdust af handahófi 1.533 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.505 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 907 einstaklingum og jafngildir það 60,3% svarhlutfalli.

Talnaefni