Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 201.700 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í desember 2017, sem jafngildir 81,8% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 195.600 starfandi og 6.100 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,3% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3%.
Samanburður mælinga fyrir desember 2016 og 2017 sýna að vinnuaflið hefur annars vegar aukist um 4.700 manns en hins vegar lækkaði hlutfall þess af mannfjölda um 1,2 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 3.700 en hlutfall þeirra af mannfjölda lækkaði þó um 1,5 prósentustig. Atvinnulausir eru um 1.000 fleiri en á sama tíma árið 2016 og hlutfall þeirra jókst um 0,4 prósentustig. Alls voru 44.900 utan vinnumarkaður og fjölgaði þeim um 4.500 manns frá því í desember 2016 en þá voru þeir 40.400.
Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára desember 2017
Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±1,4, karlar ±1,5, konur ±2,5.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,3% í desember
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 204.800 í desember 2017 sem jafngildir 83% atvinnuþátttöku, sem er hækkun um 2,1 prósentustig frá nóvember 2017. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í desember var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 6.800 og jókst um 2.600 manns frá áætluðum fjölda í nóvember. Hlutfall atvinnulausra hækkaði því á milli nóvember og desember 2017 um 1,2 prósentustig, úr 2,1% í 3,3%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í desember 2017 var 80,3%, sem er 1,1 prósentustigi hærra en það var í nóvember. Áætlaður fjöldi utan vinnumarkaðar minnkaði úr 46.700 í 41.900 á milli mánaða, eða um 4.800 manns. Þrátt fyrir þessar breytingar á árstíðaleiðréttum vinnuaflstölum kemur í ljós að þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni talnanna að atvinnuþátttaka, hlutfall starfandi og atvinnuleysi standa nú nánast í stað.
Framkvæmd
Desember 2017 nær til fjögurra vikna, eða frá 4. til og með 31. desember. Í úrtak vinnumarkaðsrannsóknarinnar völdust af handahófi 1.215 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.186 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 799 einstaklingum sem jafngildir 67,4% svarhlutfalli. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna fyrir desember 2017 um atvinnuþátttöku eru ±2,6 prósentustig, hlutfall starfandi ±2,7 prósentustig og atvinnuleysi ±1,4 prósentustig. Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.
Tafla 1. Vinnumarkaður í desember — mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2015 | (±95%) | 2016 | (±95%) | 2017 | (±95%) | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 81,0 | 2,5 | 83,0 | 2,2 | 81,8 | 2,6 |
Hlutfall starfandi | 79,4 | 2,6 | 80,8 | 2,3 | 79,3 | 2,7 |
Atvinnuleysi | 1,9 | 1 | 2,6 | 1,4 | 3,0 | 1,4 |
Vinnustundir | 37,7 | 1,3 | 37,7 | 1,2 | 37,6 | 1,4 |
Vinnuafl | 188.500 | 5.900 | 197.000 | 5.200 | 201.700 | 6.400 |
Starfandi | 184.900 | 6.100 | 191.900 | 5.500 | 195.600 | 6.800 |
Atvinnulausir | 3.600 | 1.900 | 5.100 | 2.200 | 6.100 | 2.900 |
Utan vinnumarkaðar | 44.200 | 5.900 | 40.400 | 5.200 | 44.900 | 6.400 |
Áætlaður mannfjöldi | 232.700 | • | 237.300 | • | 246.600 | • |
Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting | ||||||
júl.17 | ágú.17 | sep.17 | okt.17 | nóv.17 | des.17 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 81,3 | 81,7 | 81,2 | 83,0 | 80,9 | 83,0 |
Hlutfall starfandi | 79,7 | 79,4 | 78,7 | 79,9 | 79,2 | 80,3 |
Atvinnuleysi | 1,9 | 2,8 | 3,1 | 3,7 | 2,1 | 3,3 |
Vinnustundir | 39,2 | 39,6 | 39,3 | 39,9 | 39,4 | 40,0 |
Vinnuafl | 194.400 | 196.300 | 198.500 | 203.900 | 198.500 | 204.800 |
Starfandi | 190.700 | 190.900 | 192.300 | 196.300 | 194.300 | 198.000 |
Atvinnulausir | 3.700 | 5.400 | 6.200 | 7.600 | 4.200 | 6.800 |
Utan vinnumarkaðar | 44.800 | 44.000 | 45.800 | 41.700 | 46.700 | 41.900 |
Áætlaður mannfjöldi | 239.200 | 240.300 | 244.400 | 245.600 | 245.200 | 246.600 |
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
júl.17 | ágú.17 | sep.17 | okt.17 | nóv.17 | des.17 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 82,3 | 82,1 | 82,1 | 82,1 | 82,3 | 82,4 |
Hlutfall starfandi | 79,9 | 79,7 | 79,6 | 79,7 | 79,9 | 80,0 |
Atvinnuleysi | 2,9 | 2,9 | 3,0 | 2,9 | 2,9 | 2,9 |
Vinnustundir | 39,7 | 39,7 | 39,7 | 39,7 | 39,7 | 39,7 |
Vinnuafl | 198.600 | 199.000 | 199.700 | 200.800 | 202.000 | 202.800 |
Starfandi | 192.800 | 193.100 | 193.800 | 194.900 | 196.100 | 197.000 |
Atvinnulausir | 5.800 | 5.900 | 5.900 | 5.900 | 5.900 | 5.900 |
Utan vinnumarkaðar | 42.700 | 43.300 | 43.700 | 43.700 | 43.500 | 43.300 |
Áætlaður mannfjöldi | 241.300 | 242.300 | 243.400 | 244.500 | 245.500 | 246.200 |