Áætlað er að 201.600 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í desember 2018, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands, en það jafngildir 79,6% (±2,5) atvinnuþátttöku. Af þeim voru 198.800 (±6.500) starfandi og 2.800 (±1.800) án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,5% (±2,6) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1,4% (±0,9).

Samanburður mælinga fyrir desember 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið minnkaði örlítið, eða um 100 manns og hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 2,2 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 3.200 manns, en hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði um 0,8 prósentustig. Atvinnulausir í desember 2018 mældust 3.300 færri en í sama mánuði árið 2017 þegar þeir voru 6.100 eða 3,0% af vinnuaflinu. Mikilvægt er að hafa í huga að þrátt fyrir að mæling atvinnuleysis í desember 2018 sé óvenju lág þá er munurinn á atvinnuleysi milli nóvember og desember ekki tölfræðilega marktækur né heldur munurinn á mælingum atvinnuleysis í desember 2017 og desember 2018. Alls voru 51.700 utan vinnumarkaðar í desember 2018 sem er fjölgun frá því í desember 2017 þegar þeir voru 44.900.

Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, desember 2018 Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±0,9; karlar ±1,3; konur ±1,2.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 3,6% í desember 2018
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 203.800 í desember 2018. Árstíðarleiðrétt atvinnuþáttaka var 80,6% í desember, sem er rúmlega einu og hálfu prósentustigi minna en í nóvember. Samkvæmt árstíðaleiðréttingunni voru atvinnulausir 3.400 í desember eða 1,7%, sem er 1,8 prósentustigi lægra en í nóvember. Fyrir sama tímabil var leiðrétt hlutfall starfandi fólks 79,2%, sem er 0,1 prósentustigi lægra en það var í nóvember. Þegar horft er til síðustu tólf mánaða sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuþátttaka dróst saman um 0,3 prósentustig, á meðan hlutfall starfandi jókst um 0,1 prósentustig og atvinnuleysi lækkaði um 0,5 prósentustig.

Tafla 1.Vinnumarkaður í desember — mæling
Öryggisbil Öryggisbil Öryggisbil
 2016 (±95%)2017 (±95%)2018 (±95%)
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 83,0 2,2 81,8 2,6 79,6 2,5
Hlutfall starfandi 80,8 2,3 79,3 2,8 78,5 2,6
Atvinnuleysi 2,6 1,1 3,0 0,9 1,4 0,9
Vinnustundir 37,7 1,2 37,6 1,5 36,2 1,3
Vinnuafl 197.000 5.100 201.700 6.400 201.600 6.300
Starfandi 191.900 5.500 195.600 6.800 198.800 6.500
Atvinnulausir 5.100 2.200 6.100 2.900 2.800 1.800
Utan vinnumarkaðar 40.400 5.100 44.900 6.400 51.700 6.300
Áætlaður mannfjöldi 237.300 246.600 253.300

Tafla 2.Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétting
 júl.18ágú.18sep.18okt.18nóv.18des.18
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 81,6 81,6 81,6 81,7 82,2 80,6
Hlutfall starfandi 78,7 79,5 80,2 79,3 79,3 79,2
Atvinnuleysi 3,6 2,6 1,7 3,1 3,5 1,7
Vinnustundir 39,8 40,9 38,6 39,7 38,8 38,9
Vinnuafl 204.400 204.300 204.900 206.600 208.600 203.800
Starfandi 197.100 198.900 201.300 200.300 201.200 200.400
Atvinnulausir 7.300 5.400 3.600 6.300 7.400 3.400
Utan vinnumarkaðar 46.000 45.900 46.200 46.100 45.000 49.100
Áætlaður mannfjöldi 250.400 250.300 251.100 252.800 253.600 252.900

Tafla 3.Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétt leitni
 júl.18ágú.18sep.18okt.18nóv.18des.18
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 81,8 81,8 81,8 81,8 81,7 81,7
Hlutfall starfandi 79,5 79,6 79,6 79,6 79,6 79,7
Atvinnuleysi 2,7 2,7 2,6 2,6 2,6 2,5
Vinnustundir 39,8 39,8 39,6 39,4 39,4 39,4
Vinnuafl 203.900 204.300 204.800 205.200 205.500 205.700
Starfandi 198.300 198.800 199.400 199.900 200.200 200.500
Atvinnulausir 5.600 5.500 5.400 5.300 5.300 5.200
Utan vinnumarkaðar 45.500 45.600 45.700 45.800 45.900 46.000
Áætlaður mannfjöldi 249.400 249.900 250.500 251.000 251.400 251.700

Um gögnin
Vinnumarkaðsrannsóknin í desember 2018 nær til fjögurra vikna, frá 3. desember til og með 30. desember. Í úrtak völdust af handahófi 1.543 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.509 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 973 einstaklingum og jafngildir það 64,5% svarhlutfalli.

Talnaefni