FRÉTT VINNUMARKAÐUR 22. MARS 2018

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands er áætlað að 198.300 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í febrúar 2018, sem jafngildir 80,1% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 193.500 starfandi og 4.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,4%.

Samanburður mælinga fyrir febrúar 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst lítillega eða um 900 manns og hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 2,7 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 2.200 manns. Þrátt fyrir þá fjölgun lækkaði hlutfall þeirra af mannfjölda um 2,2 prósentustig. Atvinnulausir eru um 1.200 færri en á sama tíma árið 2017 og hlutfall þeirra lækkaði um 0,6 prósentustig. Alls voru 49.100 utan vinnumarkaðar og fjölgaði þeim um 6.100 manns frá því í febrúar 2017 en þá voru þeir 40.800.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, febrúar 2018



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±1,1, karlar ±1,7, konur ±1,4.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,4% í febrúar
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 202.000 í febrúar 2018 sem jafngildir 81,7% atvinnuþátttöku, lækkun um 1,5 prósentustig frá janúar. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í febrúar var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 4.900 og fækkaði um 2.200 manns frá áætluðum fjölda í janúar. Hlutfall atvinnulausra lækkaði því á milli janúar og febrúar 2018 um eitt prósentustig, úr 3,4% í 2,4%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í febrúar 2018 var 79,7%, sem er 0,6 prósentustigum lægra en það var í janúar. Áætlaður fjöldi utan vinnumarkaðar jókst úr 41.900 í 45.300 á milli mánaða, eða um 3.400 manns. Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni hlutfalls að allar vinnuaflstölur standa í stað, hvort heldur sem litið er til atvinnuþátttöku, hlutfalls starfandi, atvinnuleysis eða vinnustunda.
 

Framkvæmd
Febrúar 2018 í vinnumarkaðsrannsókninni nær til fjögurra vikna, frá 29. janúar til og með 25. febrúar. Í úrtak völdust af handahófi 1.529 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.485 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 991 einstaklingi sem jafngildir 66,7% svarhlutfalli. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna fyrir febrúar 2018 um atvinnuþátttöku eru ±2,5 prósentustig, hlutfall starfandi ±2,6 prósentustig og atvinnuleysi ±1,1 prósentustig. Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði. Áætlaðar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabrigðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í febrúar — mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2016 (±95%)  2017 (±95%)  2018 (±95%) 
Alls 16–74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,1 2,5 82,9 2,5 80,1 2,5
Hlutfall starfandi 79,6 2,6 80,4 2,7 78,2 2,6
Atvinnuleysi 3,1 1,3 3,0 1,1 2,4 1,1
Vinnustundir 39,9 1,3 39,3 1,4 38,7 1,2
Vinnuafl 190.900 5.800 197.400 6.100 198.300 6.100
Starfandi 185.100 6.200 191.300 6.500 193.500 6.300
Atvinnulausir 5.900 2.600 6.000 2.800 4.800 2.200
Utan vinnumarkaðar 41.700 5.800 40.800 6.100 49.100 6.100
Áætlaður mannfjöldi 232.600 238.100 247.400
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting
  sep.17 okt.17 nóv.17 des.17 jan.18 feb.18
Alls 16–74 ára            
Atvinnuþátttaka 80,6 82,6 81,9 82,9 83,2 81,7
Hlutfall starfandi 78,0 79,7 79,8 80,0 80,3 79,7
Atvinnuleysi 3,2 3,5 2,5 3,4 3,4 2,4
Vinnustundir 39,3 39,9 39,5 39,9 39,7 39,4
Vinnuafl 196.100 202.700 201.600 204.500 207.100 202.000
Starfandi 189.900 195.500 196.500 197.500 200.000 197.100
Atvinnulausir 6.200 7.200 5.100 7.000 7.100 4.900
Utan vinnumarkaðar 47.300 42.700 44.500 42.300 41.900 45.300
Áætlaður mannfjöldi 243.400 245.300 246.100 246.800 248.900 247.300
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétt leitni
  sep.17 okt.17 nóv.17 des.17 jan.18 feb.18
Alls 16–74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,5 82,5 82,5 82,5 82,5 82,5
Hlutfall starfandi 80,2 80,2 80,2 80,2 80,2 80,2
Atvinnuleysi 2,7 2,8 2,8 2,8 2,8 2,7
Vinnustundir 39,6 39,6 39,6 39,6 39,6 39,6
Vinnuafl 200.000 200.600 201.300 202.100 202.700 203.000
Starfandi 194.500 195.000 195.700 196.500 197.000 197.400
Atvinnulausir 5.500 5.600 5.600 5.600 5.600 5.600
Utan vinnumarkaðar 42.400 42.600 42.800 42.900 43.000 43.100
Áætlaður mannfjöldi 242.400 243.200 244.100 245.000 245.600 246.000

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.