FRÉTT VINNUMARKAÐUR 23. FEBRÚAR 2017

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 193.100 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í janúar 2017, sem jafngildir 80,3% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 185.300 starfandi og 7.900 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,1% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,1%. Samanburður mælinga fyrir janúar 2016 og 2017 sýnir að atvinnuþátttaka dróst saman um 1,2 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 1.400 manns en hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði hins vegar um 2,1 stig. Atvinnulausum fjölgaði um 2.600 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu hækkaði um 1,3 prósentustig.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára janúar 2017



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,6% í janúar
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 199.600 í janúar 2017 sem jafngildir 82,7% atvinnuþátttöku, sem er lækkun um 1,3 prósentustig frá desember 2016. Fjöldi atvinnulausra í janúar var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 7.300 og hefur fjölgað um 1.400 manns frá áætluðum fjölda atvinnulausra í desember. Hlutfall atvinnulausra hækkaði því á milli desember 2016 og janúar 2017 eða um 0,6 stig, úr 3,0% í 3,6%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í janúar 2017 var 79,7%, sem er 1,8 stigum lægra en í desember. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi stendur í stað, en á síðustu tólf mánuðum hefur það lækkað lítillega eða um 0,2 prósentustig. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur lækkað lítillega eða um 0,3 stig, en aftur á móti aukist um 0,7 stig þegar horft er til þróunar síðustu tólf mánaða.

 

Framkvæmd
Janúar 2016 nær til fjögurra vikna, eða frá 2. til 29. janúar 2017. Úrtakið var 1.203 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.166 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 856 einstaklingum sem jafngildir 73,4% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,6 stig, hlutfall starfandi ±2,8 stig og og atvinnuleysi ±1,5 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði. Áætlaðar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabrigðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í janúar - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2015 (±95%)  2016 (±95%)  2017 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 80,1 2,2 81,5 2,4 80,3 2,6
Hlutfall starfandi 76,7 2,3 79,2 2,6 77,1 2,8
Atvinnuleysi 4,3 1,3 2,8 1,5 4,1 1,5
Vinnustundir 38,0 1,2 39,2 1,3 39,2 1,2
Vinnuafl 184.800 5.100 189.300 5.700 193.100 6.300
Starfandi 176.800 5.400 183.900 6.000 185.300 6.700
Atvinnulausir 8.000 2.400 5.300 2.400 7.900 3.000
Utan vinnumarkaðar 45.800 5.100 42.900 5.700 47.200 6.300
Áætlaður mannfjöldi 230.600 232.100 240.400
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  ágú.16 sep.16 okt.16 nóv.16 des.16 jan.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 84,0 84,1 83,3 84,5 84,0 82,7
Hlutfall starfandi 81,4 81,3 80,9 82,0 81,5 79,7
Atvinnuleysi 3,1 3,3 2,9 3,0 3,0 3,6
Vinnustundir 39,8 40,5 40,1 40,1 40,2 40,5
Vinnuafl 197.200 198.500 197.800 200.600 199.300 199.600
Starfandi 191.100 192.000 192.100 194.500 193.400 192.300
Atvinnulausir 6.100 6.500 5.700 6.100 5.900 7.300
Utan vinnumarkaðar 37.600 37.600 39.700 36.700 37.900 41.600
Áætlaður mannfjöldi 234.800 236.100 237.500 237.300 237.200 241.200
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  ágú.16 sep.16 okt.16 nóv.16 des.16 jan.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,7 83,8 83,8 83,7 83,5 83,4
Hlutfall starfandi 81,2 81,2 81,2 81,2 81,0 80,9
Atvinnuleysi 3,0 3,0 3,0 3,0 3,0 3,0
Vinnustundir 40,1 40,1 40,2 40,2 40,2 40,2
Vinnuafl 197.200 198.000 198.600 199.000 199.000 198.800
Starfandi 191.300 192.000 192.600 193.000 193.000 192.800
Atvinnulausir 5.900 6.000 6.000 6.000 6.000 6.000
Utan vinnumarkaðar 38.400 38.400 38.500 38.800 39.200 39.500
Áætlaður mannfjöldi 235.700 236.400 237.100 237.800 238.200 238.300

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.