Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar var fjöldi fólks á vinnumarkaði 211.500 í janúar 2019. Árstíðarleiðrétt atvinnuþáttaka var 83,3% í janúar, sem er rúmlega 2,6 prósentustigi meira en í desember 2018. Samkvæmt árstíðaleiðréttingunni voru atvinnulausir 5.800 í janúar eða 2,7%, sem er 1,1 prósentustigi hærra en í mánuðinum á undan. Fyrir sama tímabil jókst leiðrétt hlutfall starfandi fólks um 1,8 prósentustig, eða í 81,0% í janúar 2019.

Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuþátttaka dróst saman um 0,1 prósentustig, á meðan hlutfall starfandi jókst um 0,2 prósentustig og atvinnuleysi lækkaði um 0,1 prósentustig.

Samkvæmt óleiðréttum mælingum voru að jafnaði 207.500 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í janúar 2019. Það jafngildir 81,9% (±2,1%) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu reyndust 201.400 (±5.600) vera starfandi og 6.100 (±2.300) án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,5% (±2,2%) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9% (±1,1%).

Samanburður mælinga fyrir janúar 2018 og 2019 sýnir að í vinnuafli fjölgaði um 6.400 manns, á meðan hlutfall þess af mannfjölda hækkaði um hálft prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 8.000, eða 1,3 prósentustig, frá því á sama tíma árið 2018.

Atvinnulausir í janúar 2019 voru um 1.600 færri en á sama tíma 2018 þegar þeir voru 7.700 eða 3,8% af vinnuaflinu. Alls voru 46.000 utan vinnumarkaðar í janúar 2019 en í janúar 2018 voru þeir 46.100.

Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, janúar 2019 – Mæling

Flæðirit janúar 2019

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±1,1; karlar ±1,6; konur ±1,6

Mynd 1. Mánaðarlegt atvinnuleysi 16-74 ára

Mynd 2. Mánaðarlegt hlutfall starfandi 16-74 ára.

Mynd 3. Mánaðarlegt hlutfall utan vinnumarkaðar 16-74 ára.

Mynd 4. Mánaðarlegt atvinnuleysi ungs fólks 16-24 ára.

Tafla 1. Vinnumarkaður í janúar — mæling
Öryggisbil Öryggisbil Öryggisbil
 2017 (±95%)2018 (±95%)2019 (±95%)
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 80,4 2,6 81,3 2,3 81,9 2,1
Hlutfall starfandi 77,3 2,8 78,2 2,5 79,5 2,2
Atvinnuleysi 3,9 1,5 3,8 1,4 2,9 1,1
Vinnustundir 39,2 1,2 38,5 1,2 38,3 1
Vinnuafl 191.200 6.200 201.100 5.600 207.500 5.300
Starfandi 183.700 6.600 193.400 6.100 201.400 5.600
Atvinnulausir 7.500 3.000 7.700 2.900 6.100 2.300
Utan vinnumarkaðar 46.500 6.200 46.100 5.600 46.000 5.300
Áætlaður mannfjöldi 237.700 247.200 253.400

Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétting
 ágú.18sep.18okt.18nóv.18des.18jan.19
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 81,7 81,6 81,8 82,3 80,6 83,3
Hlutfall starfandi 79,5 80,2 79,2 79,4 79,3 81,0
Atvinnuleysi 2,7 1,8 3,1 3,5 1,7 2,7
Vinnustundir 40,4 39,2 39,4 39,0 39,3 39,6
Vinnuafl 204.500 205.100 206.800 208.700 203.900 211.500
Starfandi 199.000 201.400 200.400 201.400 200.500 205.700
Atvinnulausir 5.500 3.700 6.400 7.300 3.400 5.800
Utan vinnumarkaðar 45.900 46.200 46.100 45.000 49.000 42.400
Áætlaður mannfjöldi 250.400 251.300 252.900 253.700 253.000 253.900

Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétt leitni
 ágú.18sep.18okt.18nóv.18des.18jan.19
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 81,9 81,9 81,9 81,9 82,0 82,0
Hlutfall starfandi 79,7 79,7 79,7 79,8 79,8 79,8
Atvinnuleysi 2,7 2,7 2,7 2,6 2,6 2,6
Vinnustundir 39,6 39,5 39,4 39,4 39,4 39,4
Vinnuafl 204.700 205.300 205.800 206.300 206.800 207.200
Starfandi 199.200 199.800 200.300 200.800 201.300 201.800
Atvinnulausir 5.500 5.500 5.500 5.500 5.400 5.400
Utan vinnumarkaðar 45.300 45.400 45.400 45.500 45.500 45.600
Áætlaður mannfjöldi 250.000 250.700 251.300 251.800 252.300 252.800

Um gögnin
Vinnumarkaðsrannsóknin í janúar 2019 nær til fimm vikna, frá 31. desember 2018 til og með 1. febrúar 2019. Í úrtak völdust af handahófi 1.924 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.884 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.189 einstaklingum og jafngildir það 63,1% svarhlutfalli.

Talnaefni