Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 201.800 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í júní 2016, sem jafngildir 85,3% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 197.100 starfandi og 4.700 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 83,3% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,3%. Samanburður mælinga fyrir júní 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan minnkaði um 1,3 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 700, en hlutfallið af mannfjölda minnkaði um 0,8 stig. Atvinnulausum fækkaði um 1.100 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu minnkaði um 0,6 prósentustig. Atvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lágt í júnímánuði síðan árið 2008 þegar það mældist 2,2%.
Flæðirit — Vinnumarkaður, 16–74 ára, júní 2016
Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðu vegna þess að tölur eru jafnaðar.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,6% í júní
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands er atvinnuleysi að öllu jöfnu hæst í apríl og maí vegna aukinnar eftirspurnar ungs fólks (16–24 ára) eftir sumar- og/eða framtíðarstörfum og lægst yfir sumarmánuðina júní, júlí og ágúst. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 193.800 í júní 2016 sem jafngildir 83,1% atvinnuþátttöku, sem er 0,6 prósentustigum lægri en hún var í maí. Fjöldi atvinnulausra í júní var samkvæmt árstíðaleiðréttingu 5.100 sem er aukning um 800 manns frá því í maí. Hlutfall atvinnulausra jókst því úr 2,2% í maí í 2,6% í júní. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í júní 2016 var 80,9%, sem er lækkun um eitt prósentustig frá því í maí. Leitni vinnuaflstalna sýnir að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,4 prósentustig sé horft til síðustu sex mánaða og um 1,2 stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aftur á móti aukist um 0,8 prósentustig og um 1,6 stig síðustu tólf mánuði.
Framkvæmd
Júní 2016 nær til fimm vikna, eða frá 30. maí til 3. júlí. Úrtakið var 1.517 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.481 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.049 einstaklingum sem jafngildir 70,8% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2 stig, hlutfall starfandi ±2,2 stig og og atvinnuleysi ±1 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.
Tafla 1. Vinnumarkaður í júní, mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2014 | (±95%) | 2015 | (±95%) | 2016 | (±95%) | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 85,3 | 2,2 | 86,6 | 2 | 85,3 | 2 |
Hlutfall starfandi | 81,4 | 2,4 | 84,1 | 2,2 | 83,3 | 2,2 |
Atvinnuleysi | 4,6 | 1,5 | 2,9 | 1 | 2,3 | 1 |
Vinnustundir | 43,2 | 1,3 | 42,5 | 1,3 | 41,7 | 1,2 |
Vinnuafl | 195.300 | 5.000 | 202.200 | 4.700 | 201.800 | 4.800 |
Starfandi | 186.300 | 5.600 | 196.400 | 5.200 | 197.100 | 5.100 |
Atvinnulausir | 9.000 | 2.900 | 5.800 | 2.300 | 4.700 | 2.100 |
Utan vinnumarkaðar | 33.600 | 5.000 | 31.300 | 4.700 | 34.800 | 4.800 |
Áætlaður mannfjöldi | 228.800 | • | 233.500 | • | 236.600 | • |
Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði, árstíðaleiðrétting | ||||||
jan.16 | feb.16 | mar.16 | apr.16 | maí.16 | jún.16 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 82,9 | 82,7 | 83,1 | 84,1 | 83,7 | 83,1 |
Hlutfall starfandi | 80,7 | 80,1 | 80,4 | 81,0 | 81,9 | 80,9 |
Atvinnuleysi | 2,7 | 3,2 | 3,3 | 3,7 | 2,2 | 2,6 |
Vinnustundir | 40,7 | 40,3 | 40,3 | 40,2 | 40,1 | 39,8 |
Vinnuafl | 194.200 | 193.600 | 194.000 | 198.100 | 196.500 | 193.800 |
Starfandi | 189.000 | 187.400 | 187.600 | 190.800 | 192.300 | 188.700 |
Atvinnulausir | 5.200 | 6.200 | 6.400 | 7.300 | 4.300 | 5.100 |
Utan vinnumarkaðar | 40.000 | 40.500 | 39.300 | 37.300 | 38.200 | 39.400 |
Áætlaður mannfjöldi | 234.200 | 234.100 | 233.300 | 235.400 | 234.700 | 233.200 |
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði, árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
jan.16 | feb.16 | mar.16 | apr.16 | maí.16 | jún.16 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 82,8 | 82,9 | 83,0 | 83,1 | 83,3 | 83,3 |
Hlutfall starfandi | 80,2 | 80,3 | 80,4 | 80,7 | 80,9 | 81,0 |
Atvinnuleysi | 3,2 | 3,1 | 3,1 | 3,0 | 2,9 | 2,8 |
Vinnustundir | 40,4 | 40,3 | 40,3 | 40,2 | 40,1 | 40,0 |
Vinnuafl | 193.900 | 194.400 | 194.900 | 195.400 | 195.700 | 195.900 |
Starfandi | 187.700 | 188.300 | 188.900 | 189.500 | 190.100 | 190.400 |
Atvinnulausir | 6.200 | 6.100 | 6.000 | 5.800 | 5.600 | 5.500 |
Utan vinnumarkaðar | 40.200 | 40.200 | 40.000 | 39.600 | 39.400 | 39.200 |
Áætlaður mannfjöldi | 234.100 | 234.600 | 234.900 | 235.000 | 235.100 | 235.100 |