FRÉTT VINNUMARKAÐUR 22. JÚNÍ 2017

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 203.900 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í maí 2017, sem jafngildir 85% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 193.000 starfandi og 10.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 5,3%. Samanburður mælinga fyrir maí 2016 og 2017 sýnir að atvinnuþátttaka lækkaði um 0,9 prósentustig. Fjöldi starfandi minnkaði um 600 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði um 2,1 stig. Atvinnulausum fjölgaði um 3.000 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu jókst um 1,4 stig. Það einkennir íslenskan vinnumarkaði að atvinnuleysi eykst alltaf á vormánuðum og þá sérstaklega í maí. Helsta ástæðan er aukin eftirspurn ungs fólks eftir atvinnu. Af öllum atvinnulausum í maí voru 61,7% á aldrinum 16-24 ára og var atvinnuleysi á meðal þeirra 17,6%.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára maí 2017

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,2% í maí
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 200.600 í maí 2017 sem jafngildir 83,5% atvinnuþátttöku, sem er lækkun um 0,4 prósentustig frá apríl 2017. Fjöldi atvinnulausra í maí var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 6.300 og fjölgaði um 1.400 manns frá áætluðum fjölda atvinnulausra í apríl. Hlutfall atvinnulausra jókst því á milli apríl og maí 2017 um 0,7 stig, úr 2,4% í 3,2%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í maí 2017 var 80,9%, sem er 1,1 stigi lægra en í apríl. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,3 prósentustig. Sama lækkun á einnig við um síðustu tólf mánuði. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur hækkað um 0,5 stig og þegar horft er til þróunar síðustu tólf mánaða hefur hlutfallið aukist um 0,7 stig.

 

 

Framkvæmd
Maí 2017 nær til fjögurra vikna, eða frá 1. til 28. maí. Úrtakið var 1.205 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.164 einstaklingur. Alls fengust nothæf svör frá 788 einstaklingum sem jafngildir 67,7% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,3 stig, hlutfall starfandi ±2,7 stig og og atvinnuleysi ±1,8 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði. Tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungsins eru bráðabirgðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í maí - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2015 (±95%)  2016 (±95%)  2017 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 84,2 2,3 85,9 2,2 85,0 2,3
Hlutfall starfandi 78,5 2,6 82,6 2,5 80,5 2,7
Atvinnuleysi 6,8 1,8 3,9 1,5 5,3 1,8
Vinnustundir 41,1 1,3 41,4 1,3 41,8 1,4
Vinnuafl 196.200 5.300 201.400 5.100 203.900 5.600
Starfandi 182.900 6.000 193.600 5.800 193.000 6.500
Atvinnulausir 13.200 3.500 7.800 3.000 10.800 3.800
Utan vinnumarkaðar 36.900 5.300 33.100 5.100 36.000 5.600
Áætlaður mannfjöldi 233.000 234.500 239.800
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  des.16 jan.17 feb.17 mar.17 apr.17 maí.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,9 83,1 83,9 84,6 84,0 83,5
Hlutfall starfandi 81,4 79,9 81,3 83,2 81,9 80,9
Atvinnuleysi 3,0 3,8 3,1 1,7 2,4 3,2
Vinnustundir 40,2 40,4 40,1 40,1 40,5 40,5
Vinnuafl 198.900 199.400 200.400 202.100 202.100 200.600
Starfandi 193.000 191.900 194.300 198.600 197.200 194.300
Atvinnulausir 5.900 7.500 6.100 3.500 4.900 6.300
Utan vinnumarkaðar 38.100 40.600 38.500 36.700 38.600 39.600
Áætlaður mannfjöldi 237.000 240.100 238.900 238.800 240.700 240.200
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  des.16 jan.17 feb.17 mar.17 apr.17 maí.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,6 83,6 83,7 83,9 83,9 83,9
Hlutfall starfandi 81,2 81,2 81,4 81,6 81,7 81,7
Atvinnuleysi 2,9 2,8 2,8 2,7 2,7 2,6
Vinnustundir 40,2 40,2 40,2 40,3 40,3 40,3
Vinnuafl 199.000 199.300 200.200 201.000 201.100 200.900
Starfandi 193.300 193.700 194.600 195.600 195.800 195.600
Atvinnulausir 5.700 5.600 5.500 5.400 5.300 5.300
Utan vinnumarkaðar 38.900 39.100 38.900 38.600 38.500 38.500
Áætlaður mannfjöldi 237.900 238.400 239.000 239.600 239.600 239.300


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.