FRÉTT VINNUMARKAÐUR 27. APRÍL 2016

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 191.000 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í mars 2016, sem jafngildir 81,8% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 188.800 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,7% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,8%. Samanburður mælinga fyrir mars 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan minnkaði lítillega eða um 0,2 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 1.400 en hlutfallið af mannfjölda stóð hins vegar í stað. Atvinnulausum fækkaði um sem nemur 500 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 0,3 stig.

Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára mars 2016



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,3% í mars
Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 194.300 í mars 2016 sem jafngildir 83,1% atvinnuþátttöku og var 0,4 prósentustigum hærri en í febrúar 2016. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var hlutfall starfandi fólks 80,3% og jókst um 0,2 prósentustig á milli febrúar og mars 2016. Á sama tíma stóð atvinnuleysi nánast í stað. Það var 3,3% í mars en var í 3,2% febrúar 2016. Þegar horft er á leitni tölur síðustu sex mánuða þá sýna vinnuaflstölur að frá því í október 2015 hefur atvinnuþátttaka staðið í stað, atvinnuleysi lækkaði um 0,6 prósentustig og hlutfall starfandi fólki hefur hefur aukist um 0,5 stig.

 

Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum, eins og sjá má á myndunum hér að framan, og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnar sveiflur frá óreglulegum breytingum. Árstíðaleiðréttingin gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu.

Mars 2016 nær til fimm vikna, eða frá 29. febrúar til 3. apríl. Úrtakið var 1.520 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.474 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.085 einstaklingum sem jafngildir 73,6% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,2 stig, hlutfall starfandi ±2,4 stog og atvinnuleysi ±1,3 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í mars - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2014 (±95%)  2015 (±95%)  2016 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 79,9 2,6 82,0 2,4 81,8 2,2
Hlutfall starfandi 75,0 2,8 78,6 2,6 78,7 2,4
Atvinnuleysi 6,1 1,7 4,0 1,3 3,8 1,3
Vinnustundir 41,3 1,3 39,3 1,3 38,2 1,3
Vinnuafl 183.200 5.900 190.100 5.600 191.000 5.200
Starfandi 172.000 6.300 182.400 6.000 183.800 5.600
Atvinnulausir 11.200 3.200 7.700 2.700 7.200 2.500
Utan vinnumarkaðar 46.100 5.900 41.800 5.600 42.600 5.200
Áætlaður mannfjöldi 229.300 231.900 233.600
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
   
  okt.15 nóv.15 des.15 jan.16 feb.16 mar.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,0 83,2 82,4 82,9 82,7 83,1
Hlutfall starfandi 78,7 79,6 80,6 80,7 80,1 80,3
Atvinnuleysi 4,0 4,3 2,2 2,7 3,2 3,3
Vinnustundir 40,5 40,4 40,5 40,7 40,3 40,3
Vinnuafl 190.500 194.800 191.000 194.100 193.700 194.300
Starfandi 182.800 186.400 186.700 189.000 187.500 187.800
Atvinnulausir 7.700 8.400 4.200 5.200 6.200 6.500
Utan vinnumarkaðar 41.700 39.300 40.800 40.000 40.400 39.500
Áætlaður mannfjöldi 232.100 234.100 231.700 234.100 234.200 233.800
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
   
  okt.15 nóv.15 des.15 jan.16 feb.16 mar.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,7 82,7 82,7 82,7 82,7 82,7
Hlutfall starfandi 79,6 79,8 80,0 80,0 80,0 80,1
Atvinnuleysi 3,7 3,6 3,4 3,2 3,2 3,1
Vinnustundir 40,3 40,4 40,4 40,4 40,4 40,4
Vinnuafl 191.300 192.300 193.100 193.700 194.100 194.500
Starfandi 184.200 185.400 186.600 187.500 188.000 188.400
Atvinnulausir 7.100 6.800 6.500 6.300 6.100 6.100
Utan vinnumarkaðar 40.100 40.100 40.300 40.600 40.700 40.700
Áætlaður mannfjöldi 231.500 232.300 233.400 234.300 234.900 235.200

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.