FRÉTT VINNUMARKAÐUR 03. MAÍ 2017

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 202.800 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í mars 2017, sem jafngildir 84,9% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 199.300 starfandi og 3.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 83,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1,7%. Samanburður mælinga fyrir mars 2016 og 2017 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 3,1 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 15.500 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda um 4,7 stig. Atvinnulausum fækkaði um 3.800 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 2,1 stig.

Þegar tölur um vinnuafl eru skoðaðar þá hefur atvinnuleysi ekki mælst jafn lágt í Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands síðan í nóvember 2007 þegar atvinnuleysi mældist 1,3%.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára mars 2017

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 1,6% í mars
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 201.700 í mars 2017 sem jafngildir 84,7% atvinnuþátttöku, sem er aukning um 0,9 prósentustig frá febrúar 2017. Fjöldi atvinnulausra í mars var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 3.200 og hefur fækkað um 2.700 manns frá áætluðum fjölda atvinnulausra í febrúar. Hlutfall atvinnulausra lækkaði því á milli febrúar og mars 2017 um 1,4 stig, úr 3% í 1,6%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í mars 2017 var 83,3%, sem er tveim stigum hærra en í febrúar. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,3 prósentustig, en á síðustu tólf mánuðum hefur það lækkað um 0,6 stig. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur einnig hækkað eða um 0,3 stig, en aftur á móti aukist um 1,2 stig þegar horft er til þróunar síðustu tólf mánaða. 


Framkvæmd
Mars 2016 nær til fimm vikna, eða frá 27. febrúar til 2. apríl 2017. Úrtakið var 1.513 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.480 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.034 einstaklingum sem jafngildir 69,9% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,1 stig, hlutfall starfandi ±2,2 stig og og atvinnuleysi ±0,9 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í mars - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2015 (±95%)  2016 (±95%)  2017 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,0 2,4 81,8 2,2 84,9 2,1
Hlutfall starfandi 78,6 2,6 78,7 2,4 83,4 2,2
Atvinnuleysi 4,0 1,4 3,8 0,9 1,7 0,9
Vinnustundir 39,3 1,3 38,2 1,3 39,9 1,1
Vinnuafl 190.100 5.600 191.000 5.200 202.800 5.100
Starfandi 182.400 6.000 183.800 5.600 199.300 5.300
Atvinnulausir 7.700 2.700 7.200 2.500 3.400 1.900
Utan vinnumarkaðar 41.800 5.600 42.600 5.200 36.200 5.100
Áætlaður mannfjöldi 231.900 233.600 239.000
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  okt.16 nóv.16 des.16 jan.17 feb.17 mar.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,4 84,5 83,9 83,0 83,8 84,7
Hlutfall starfandi 81,0 82,1 81,6 80,2 81,3 83,3
Atvinnuleysi 2,8 2,8 2,8 3,4 3,0 1,6
Vinnustundir 40,0 40,1 40,2 40,5 39,9 39,9
Vinnuafl 198.000 200.100 198.600 198.800 199.800 201.700
Starfandi 192.400 194.500 193.100 192.000 193.900 198.500
Atvinnulausir 5.600 5.600 5.500 6.700 5.900 3.200
Utan vinnumarkaðar 39.400 36.700 38.000 40.700 38.700 36.500
Áætlaður mannfjöldi 237.400 236.800 236.500 239.500 238.500 238.100
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  okt.16 nóv.16 des.16 jan.17 feb.17 mar.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,9 83,8 83,7 83,6 83,7 83,9
Hlutfall starfandi 81,5 81,5 81,4 81,4 81,6 81,8
Atvinnuleysi 2,8 2,8 2,7 2,7 2,6 2,5
Vinnustundir 40,1 40,1 40,1 40,1 40,0 40,0
Vinnuafl 198.400 198.700 198.700 198.900 199.700 200.500
Starfandi 192.800 193.200 193.300 193.600 194.500 195.500
Atvinnulausir 5.600 5.500 5.400 5.300 5.200 5.000
Utan vinnumarkaðar 38.200 38.400 38.800 39.000 38.800 38.400
Áætlaður mannfjöldi 236.600 237.100 237.500 237.900 238.400 239.000

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.