Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands er áætlað að 203.400 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í mars 2018, sem jafngildir 81,4% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 197.800 starfandi og 5.600 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,8%.
Samanburður mælinga fyrir mars 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst lítillega eða um 600 manns en hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 3,5 prósentustig. Fjöldi starfandi minnkaði um 1.500 manns og hlutfall þeirra af mannfjölda lækkaði um 4,3 prósentustig. Atvinnulausir eru um 2.200 fleiri en á sama tíma árið 2017 og hlutfall þeirra lækkaði um 1,1 prósentustig. Alls voru 46.500 utan vinnumarkaðar og fjölgaði þeim um 10.300 manns frá því í mars 2017 þegar þeir voru 36.200. Hér ber að geta þess að mælingin í mars 2017 var óvenjuleg að því leyti að atvinnuleysi mældist þá mjög lágt og hlutfall starfandi nokkru hærra ef miðað er við mánuðina í kring. Þetta verður að hafa í huga við samanburð á milli ára.
Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, mars 2018
Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±0,9, karlar ±1,4, konur ±1,1.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,5% í mars
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 204.800 í mars 2018 sem jafngildir 82% atvinnuþátttöku, en það er aukning um eitt prósentustig frá febrúar. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í mars var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 5.200 og jókst um 700 manns frá áætluðum fjölda í febrúar. Hlutfall atvinnulausra hækkaði því á milli febrúar og mars 2018 um 0,3 prósentustig, úr 2,2% í 2,5%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í mars 2018 var 79,9%, sem er 0,8 prósentustigum hærra en það var í febrúar. Áætlaður fjöldi utan vinnumarkaðar lækkaði úr 47.100 í 45.000 á milli mánaða, eða um 2.100 manns. Þrátt fyrir að einhverjar breytingar megi sjá bæði í mælingunni sjálfri og í árstíðaleiðréttum tölum þá sýnir leitni hlutfalls síðustu sex mánaða að allar vinnuaflstölur standa nánast í stað. Hvort heldur sem litið er til atvinnuþátttöku, hlutfalls starfandi, atvinnuleysis eða vinnustunda.
Framkvæmd
Mars 2018 í vinnumarkaðsrannsókninni nær til fimm vikna, frá 26. febrúar til og með 1. apríl. Í úrtak völdust af handahófi 1.915 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.876 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.258 einstaklingum sem jafngildir 67,1% svarhlutfalli. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna fyrir mars 2018 um atvinnuþátttöku eru ±2,1 prósentustig, hlutfall starfandi ±2,2 prósentustig og atvinnuleysi ±0,9 prósentustig. Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.
Tafla 1. Vinnumarkaður í mars — mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2016 | (±95%) | 2017 | (±95%) | 2018 | (±95%) | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 81,8 | 2,2 | 84,9 | 2,1 | 81,4 | 2,1 |
Hlutfall starfandi | 78,7 | 2,4 | 83,4 | 2,2 | 79,2 | 2,2 |
Atvinnuleysi | 3,8 | 1,3 | 1,7 | 0,9 | 2,8 | 0,9 |
Vinnustundir | 38,2 | 1,3 | 39,9 | 1,1 | 38,7 | 1 |
Vinnuafl | 191.000 | 5.200 | 202.800 | 5.000 | 203.400 | 5.200 |
Starfandi | 183.800 | 5.600 | 199.300 | 5.300 | 197.800 | 5.400 |
Atvinnulausir | 7.200 | 2.500 | 3.400 | 1.900 | 5.600 | 1.900 |
Utan vinnumarkaðar | 42.600 | 5.200 | 36.200 | 5.000 | 46.500 | 5.200 |
Áætlaður mannfjöldi | 233.600 | • | 239.000 | • | 249.800 | • |
Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting | ||||||
okt.17 | nóv.17 | des.17 | jan.18 | feb.18 | mar.18 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 82,6 | 81,9 | 82,8 | 83,1 | 81,0 | 82,0 |
Hlutfall starfandi | 79,7 | 79,8 | 80,0 | 80,4 | 79,1 | 79,9 |
Atvinnuleysi | 3,5 | 2,5 | 3,4 | 3,2 | 2,2 | 2,5 |
Vinnustundir | 39,9 | 39,5 | 39,9 | 39,9 | 39,6 | 40,1 |
Vinnuafl | 202.700 | 201.500 | 204.400 | 205.000 | 200.400 | 204.800 |
Starfandi | 195.500 | 196.400 | 197.500 | 198.400 | 195.900 | 199.600 |
Atvinnulausir | 7.100 | 5.100 | 7.000 | 6.600 | 4.500 | 5.200 |
Utan vinnumarkaðar | 42.800 | 44.600 | 42.400 | 41.800 | 47.100 | 45.000 |
Áætlaður mannfjöldi | 245.500 | 246.200 | 246.800 | 246.800 | 247.600 | 249.800 |
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
okt.17 | nóv.17 | des.17 | jan.18 | feb.18 | mar.18 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 82,4 | 82,3 | 82,3 | 82,3 | 82,3 | 82,3 |
Hlutfall starfandi | 80,1 | 80,1 | 80,1 | 80,1 | 80,1 | 80,1 |
Atvinnuleysi | 2,7 | 2,7 | 2,7 | 2,7 | 2,6 | 2,6 |
Vinnustundir | 39,7 | 39,7 | 39,8 | 39,8 | 39,8 | 39,8 |
Vinnuafl | 200.400 | 201.000 | 201.700 | 202.200 | 202.600 | 202.900 |
Starfandi | 195.000 | 195.600 | 196.300 | 196.800 | 197.200 | 197.600 |
Atvinnulausir | 5.400 | 5.400 | 5.400 | 5.400 | 5.400 | 5.300 |
Utan vinnumarkaðar | 42.900 | 43.100 | 43.300 | 43.400 | 43.600 | 43.700 |
Áætlaður mannfjöldi | 243.300 | 244.200 | 245.000 | 245.700 | 246.100 | 246.600 |