Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var fjöldi fólks á vinnumarkaði 210.900 í mars 2019. Árstíðarleiðrétt atvinnuþátttaka var 82,7%, sem er 1,9 prósentustigi meira en í febrúar. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu voru atvinnulausir 6.200 í mars, eða 2,9%, sem er 0,3 prósentustigum lægra en í febrúar. Fyrir sama tímabil jókst leiðrétt hlutfall starfandi fólks um 2,1 prósentustig, eða í 80,2% fyrir mars 2019.
Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuþátttaka stendur í stað. Hlutfall starfandi minnkaði lítllega eða um 0,1 prósentustig og atvinnuleysi jókst um 0,3 prósentustig.
Samkvæmt óleiðréttum mælingum voru að jafnaði 208.400 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í mars 2019. Það jafngildir 81,8% (±2,4) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu reyndust 202.500 (±6.600) vera starfandi og 6.000 (±2.900) án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,5% (±2,6) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9% (±1,4).
Samanburður mælinga fyrir mars 2018 og 2019 sýnir að vinnuafli fjölgaði um 5.300 manns, á meðan hlutfall þess af mannfjölda hækkaði um 0,4 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 4.000, en hlutfallið lækkaði um 0,1 prósentustig, frá því á sama tíma árið 2018.
Atvinnulausir í mars 2019 voru um 1.400 fleiri en á sama tíma 2018 þegar þeir voru 4.600 eða 2,3% af vinnuaflinu. Alls voru 46.300 utan vinnumarkaðar í mars 2019 sem er sami fjöldi og í mars 2018.
Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.
Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, mars 2019 – Mæling
Mynd 1. Mánaðarlegt atvinnuleysi 16-74 ára.
Mynd 2. Mánaðarlegt hlutfall starfandi 16-74 ára.
Mynd 3. Mánaðarlegt hlutfall utan vinnumarkaðar 16-74 ára.
Mynd 4. Mánaðarlegt atvinnuleysi ungs fólks 16-24 ára.
Tafla 1.Vinnumarkaður í mars — mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2017 | (±95%) | 2018 | (±95%) | 2019 | (±95%) | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 84,9 | 2,1 | 81,4 | 2,1 | 81,8 | 2,4 |
Hlutfall starfandi | 83,4 | 2,2 | 79,6 | 2,2 | 79,5 | 2,6 |
Atvinnuleysi | 1,7 | 0,9 | 2,3 | 0,9 | 2,9 | 1,4 |
Vinnustundir | 39,9 | 1,2 | 38,7 | 1 | 39,6 | 1,2 |
Vinnuafl | 202.800 | 5.000 | 203.100 | 5.100 | 208.400 | 6.200 |
Starfandi | 199.300 | 5.300 | 198.500 | 5.400 | 202.500 | 6.600 |
Atvinnulausir | 3.400 | 1.800 | 4.600 | 1.900 | 6.000 | 2.900 |
Utan vinnumarkaðar | 36.200 | 5.000 | 46.300 | 5.100 | 46.300 | 6.200 |
Áætlaður mannfjöldi | 239.000 | • | 249.400 | • | 254.700 | • |
Tafla 2.Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting | ||||||
okt.18 | nóv.18 | des.18 | jan.19 | feb.19 | mar.19 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 81,6 | 82,5 | 80,9 | 82,5 | 80,8 | 82,7 |
Hlutfall starfandi | 79,1 | 79,9 | 79,5 | 80,1 | 78,1 | 80,2 |
Atvinnuleysi | 3,1 | 3,2 | 1,7 | 2,9 | 3,3 | 2,9 |
Vinnustundir | 39,6 | 38,8 | 38,9 | 40,1 | 39,2 | 39,4 |
Vinnuafl | 206.500 | 209.000 | 204.600 | 208.000 | 206.800 | 210.000 |
Starfandi | 200.100 | 202.300 | 201.200 | 202.000 | 200.000 | 203.900 |
Atvinnulausir | 6.400 | 6.800 | 3.400 | 6.000 | 6.800 | 6.200 |
Utan vinnumarkaðar | 46.500 | 44.200 | 48.500 | 44.200 | 49.200 | 44.100 |
Áætlaður mannfjöldi | 253.000 | 253.300 | 253.100 | 252.200 | 256.100 | 254.100 |
Tafla 3.Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
okt.18 | nóv.18 | des.18 | jan.19 | feb.19 | mar.19 | |
Alls 16–74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 81,8 | 81,8 | 81,8 | 81,9 | 81,9 | 81,9 |
Hlutfall starfandi | 79,6 | 79,6 | 79,5 | 79,5 | 79,4 | 79,5 |
Atvinnuleysi | 2,7 | 2,8 | 2,8 | 3,0 | 3,0 | 3,0 |
Vinnustundir | 39,3 | 39,2 | 39,3 | 39,3 | 39,4 | 39,4 |
Vinnuafl | 206.300 | 206.800 | 207.300 | 207.900 | 208.100 | 208.200 |
Starfandi | 200.700 | 201.100 | 201.400 | 201.700 | 201.800 | 202.000 |
Atvinnulausir | 5.500 | 5.700 | 5.900 | 6.100 | 6.300 | 6.200 |
Utan vinnumarkaðar | 45.800 | 45.900 | 46.000 | 46.000 | 46.000 | 45.900 |
Áætlaður mannfjöldi | 252.100 | 252.700 | 253.300 | 253.900 | 254.100 | 254.200 |
Um gögnin
Vinnumarkaðsrannsóknin í mars 2019 nær til fjögurra vikna, frá 4. til og með 31. mars 2019. Í úrtak völdust af handahófi 1.532 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.499 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 940 einstaklingum og jafngildir það 62,7% svarhlutfalli.