Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 201.900 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í nóvember 2016, sem jafngildir 84,2% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 197.200 starfandi og 4.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 82,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,4%. Samanburður mælinga fyrir nóvember 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um 1,3 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 11.500 og hlutfallið af mannfjölda hækkaði um 2,2 stig. Atvinnulausum fækkaði um 2.100 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 1,2 prósentustig.
Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára nóvember 2016
Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,9% í nóvember
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 203.200 í nóvember 2016 sem jafngildir 84,9% atvinnuþátttöku, sem er aukning um 1,4 prósentustig frá október. Fjöldi atvinnulausra í nóvember var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 5.900 sem er fjölgun um 200 manns frá því í október. Hlutfall atvinnulausra hækkaði því á milli október og nóvember um 0,l stig, úr 2,8% í 2,9%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í nóvember 2016 var 82,4%, sem er 1,3 stigum meira en í október. Þegar horft er til síðust sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi stendur enn nánast í stað, en á síðustu tólf mánuðum hefur það lækkað um 0,5 prósentustig. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aftur á móti aukist um 0,6 stig og um 1,5 stig síðustu tólf mánuði.
Framkvæmd
Nóvember 2016 nær til fjögurra vikna, eða frá 31. október til 27. nóvember. Úrtakið var 1.205 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.168 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 847 einstaklingum sem jafngildir 72,6% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,4 stig, hlutfall starfandi ±2,5 stig og og atvinnuleysi ±1,1 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði. Allar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabrigðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.
Tafla 1. Vinnumarkaður í nóvember - mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2014 | (±95%) | 2015 | (±95%) | 2016 | (±95%) | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 80,8 | 2,5 | 82,9 | 2,4 | 84,2 | 2,4 |
Hlutfall starfandi | 78,3 | 2,6 | 80,0 | 2,6 | 82,2 | 2,5 |
Atvinnuleysi | 3,1 | 1,2 | 3,6 | 1,1 | 2,4 | 1,1 |
Vinnustundir | 41,3 | 1,2 | 40,5 | 1,3 | 39,9 | 1,2 |
Vinnuafl | 185.400 | 5.700 | 192.600 | 5.600 | 201.900 | 5.700 |
Starfandi | 179.600 | 5.900 | 185.700 | 6.000 | 197.200 | 6.000 |
Atvinnulausir | 5.700 | 2.300 | 6.900 | 2.600 | 4.800 | 2.300 |
Utan vinnumarkaðar | 44.100 | 5.700 | 39.600 | 5.600 | 37.800 | 5.700 |
Áætlaður mannfjöldi | 229.400 | • | 232.200 | • | 239.800 | • |
Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting | ||||||
jún.16 | júl.16 | ágú.16 | sep.16 | okt.16 | nóv.16 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 82,7 | 82,9 | 84,0 | 84,1 | 83,4 | 84,9 |
Hlutfall starfandi | 80,8 | 80,6 | 81,5 | 81,5 | 81,1 | 82,4 |
Atvinnuleysi | 2,4 | 2,8 | 2,9 | 3,1 | 2,8 | 2,9 |
Vinnustundir | 39,8 | 39,8 | 39,8 | 40,4 | 40,1 | 40,0 |
Vinnuafl | 193.100 | 195.100 | 197.000 | 198.600 | 200.200 | 203.200 |
Starfandi | 188.400 | 189.600 | 191.300 | 192.500 | 194.500 | 197.300 |
Atvinnulausir | 4.600 | 5.400 | 5.800 | 6.100 | 5.700 | 5.900 |
Utan vinnumarkaðar | 40.300 | 40.100 | 37.600 | 37.500 | 39.700 | 36.200 |
Áætlaður mannfjöldi | 233.300 | 235.200 | 234.600 | 236.200 | 239.900 | 239.400 |
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
jún.16 | júl.16 | ágú.16 | sep.16 | okt.16 | nóv.16 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 83,5 | 83,6 | 83,7 | 83,8 | 83,9 | 84,0 |
Hlutfall starfandi | 81,0 | 81,2 | 81,3 | 81,4 | 81,5 | 81,7 |
Atvinnuleysi | 2,9 | 2,9 | 2,9 | 2,9 | 2,8 | 2,8 |
Vinnustundir | 40,1 | 40,0 | 40,0 | 40,1 | 40,1 | 40,0 |
Vinnuafl | 196.000 | 196.700 | 197.600 | 198.600 | 199.700 | 200.600 |
Starfandi | 190.300 | 190.900 | 191.800 | 192.900 | 194.000 | 194.900 |
Atvinnulausir | 5.700 | 5.700 | 5.700 | 5.700 | 5.700 | 5.600 |
Utan vinnumarkaðar | 38.900 | 38.600 | 38.400 | 38.300 | 38.300 | 38.200 |
Áætlaður mannfjöldi | 234.900 | 235.300 | 236.000 | 236.900 | 237.900 | 238.700 |