FRÉTT VINNUMARKAÐUR 03. JANÚAR 2018

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 198.100 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í nóvember 2017, sem jafngildir 80,5% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 194.700 starfandi og 3.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1,7%.

Samanburður mælinga fyrir nóvember 2016 og 2017 sýna að vinnuaflið hefur dregist saman um 1.000 manns og hlutfall þess af mannfjölda lækkað um 3,5 prósentustig. Fjöldi starfandi stendur nánast í stað en hlutfall þeirra af mannfjölda lækkaði þó um 2,9 prósentustig. Atvinnulausir eru um 1.200 færri en á sama tíma árið 2016 og hlutfall þeirra lækkaði um 0,6 prósentustig. Alls voru 47.900 utan vinnumarkaður og fjölgaði þeim um 10.100 manns frá því í nóvember 2016 en þá voru þeir 37.800.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára nóvember 2017



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,5% í nóvember
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 198.800 í nóvember 2017 sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku, sem er lækkun um tvö prósentustig frá október 2017. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í október var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 4.900 og fækkaði um 2.300 manns frá áætluðum fjölda í október. Hlutfall atvinnulausra lækkaði því á milli október og nóvember 2017 um eitt prósentustig, úr 3,5% í 2,5%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í nóvember 2017 var 79%, sem er einu stigi lægra en það var í október. Áætlaður fjöldi utan vinnumarkaðar hækkaði úr 41.800 í 46.600 á milli mánaða, eða um 4.800 manns. Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuþátttaka hefur dregist saman um 0,4 prósentustig og hlutfall starfandi lækkað um 0,5 prósentustig. Atvinnuleysi stendur hins vegar í stað.

 







Framkvæmd
Nóvember 2017 nær til fimm vikna, eða frá 30. október til og með 3. desember. Í úrtak vinnumarkaðsrannsóknarinnar völdust af handahófi 1.509 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.472 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 991 einstaklingi sem jafngildir 67,3% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna fyrir nóvember 2017 um atvinnuþátttöku eru ±2,4 prósentustig, hlutfall starfandi ±2,5 prósentustig og atvinnuleysi ±1,0 prósentustig. Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði. Tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungsins eru bráðabirgðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í nóvember — mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2015 (±95%)  2016 (±95%)  2017 (±95%) 
Alls 16–74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,9 2,4 84,1 2,4 80,5 2,4
Hlutfall starfandi 80,0 2,6 82,1 2,5 79,2 2,5
Atvinnuleysi 3,6 1,3 2,3 1 1,7 1
Vinnustundir 40,5 1,2 39,8 1,2 39,1 1,1
Vinnuafl 192.600 5.600 199.100 5.700 198.100 6.000
Starfandi 185.700 6.000 194.500 6.000 194.700 6.100
Atvinnulausir 6.900 2.600 4.600 2.300 3.400 1.900
Utan vinnumarkaðar 39.600 5.600 37.800 5.700 47.900 6.000
Áætlaður mannfjöldi 232.200 236.900 245.900
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting
  jún.17 júl.17 ágú.17 sep.17 okt.17 nóv.17
Alls 16–74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,5 81,2 81,7 81,2 83,0 81,0
Hlutfall starfandi 80,4 79,7 79,5 78,7 80,0 79,0
Atvinnuleysi 2,5 1,9 2,6 3,2 3,5 2,5
Vinnustundir 39,9 39,2 39,6 39,3 39,8 39,3
Vinnuafl 198.000 194.500 195.900 198.300 203.600 198.800
Starfandi 193.000 190.800 190.800 192.000 196.400 193.800
Atvinnulausir 5.000 3.700 5.100 6.300 7.200 4.900
Utan vinnumarkaðar 42.000 45.000 44.000 45.800 41.800 46.600
Áætlaður mannfjöldi 240.000 239.500 239.900 244.100 245.400 245.300
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétt leitni
  jún.17 júl.17 ágú.17 sep.17 okt.17 nóv.17
Alls 16–74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,5 82,2 82,1 82,0 82,0 82,1
Hlutfall starfandi 80,1 79,9 79,7 79,5 79,6 79,7
Atvinnuleysi 2,9 2,9 2,9 3,0 3,0 3,0
Vinnustundir 39,8 39,7 39,6 39,6 39,5 39,5
Vinnuafl 198.600 198.700 199.000 199.500 200.100 200.500
Starfandi 193.000 193.000 193.200 193.500 194.000 194.500
Atvinnulausir 5.700 5.700 5.900 6.000 6.000 5.900
Utan vinnumarkaðar 42.100 42.900 43.500 43.800 43.800 43.700
Áætlaður mannfjöldi 240.800 241.600 242.500 243.300 243.900 244.200

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.