FRÉTT VINNUMARKAÐUR 25. NÓVEMBER 2015

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 189.400 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í október 2015, sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 182.200 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,8%. Samanburður mælinga fyrir október 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka minnkaði um 0,8 prósentustig og hlutfall starfandi fólks stóð nánast í stað. Atvinnuleysi dróst hins vegar saman um 1,2 prósentustig frá því í október 2014, úr 5% í 3,8%.

Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára október 2015



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 4% í október
Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 191.400 í október 2015 sem jafngildir 82% atvinnuþátttöku, sem er 0,8 prósentustigum lægri en hún var í september. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu þá stóð bæði hlutfall og fjöldi atvinnulausra í stað á milli september og október eða 7.600 manns sem jafngildir 4% atvinnuleysi. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í október 2015 var 78,7% og minnkaði um 0,7 prósentustig frá því í september. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi stendur í stað og á það raunar við um allar tölur um vinnuafl. Þróun síðustu 12 mánaða sýnir þó að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,3 prósentustig, hlutfall starfandi aukist um 0,5 stig og atvinnuþátttaka um 0,3.

 

Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum, eins og sjá má á myndunum hér að framan, og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnar sveiflur frá óreglulegum breytingum. Árstíðaleiðréttingin gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu. Allar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabrigðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Október 2015 nær til fimm vikna, eða frá 28. september til 1. nóvember. Úrtakið var 1.535 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.489 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.084 einstaklingum sem jafngildir 72,8% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,3, hlutfall starfandi ±2,4 og atvinnuleysi ±1,3. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

 

Tafla 1.  Vinnumarkaður í október - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2013 (±95%)  2014 (±95%)  2015 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 81,6 2,2 81,9 2,1 81,0 2,3
Hlutfall starfandi 77,5 2,3 77,8 2,3 78,0 2,4
Atvinnuleysi 5,0 1,4 5,0 1,3 3,8 1,3
Vinnustundir 39,0 1,1 39,8 1,1 40,8 1,2
Vinnuafl 186.400 4.900 188.000 4.900 189.400 5.300
Starfandi 177.100 5.300 178.600 5.400 182.200 5.700
Atvinnulausir 9.300 2.600 9.500 2.700 7.200 2.400
Utan vinnumarkaðar 42.200 4.900 41.600 4.900 44.300 5.300
Áætlaður mannfjöldi 228.600 229.600 233.700
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
   
  maí.15 jún.15 júl.15 ágú.15 sep.15 okt.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,9 83,2 81,7 83,4 82,8 82,0
Hlutfall starfandi 79,0 80,5 78,5 80,0 79,4 78,7
Atvinnuleysi 4,7 3,2 4,0 4,1 4,0 4,0
Vinnustundir 40,1 40,1 40,2 39,9 40,3 40,5
Vinnuafl 194.500 190.500 188.600 192.500 190.500 191.400
Starfandi 185.300 184.400 181.000 184.600 182.800 183.700
Atvinnulausir 9.200 6.100 7.500 7.900 7.600 7.600
Utan vinnumarkaðar 40.000 38.500 42.100 38.200 39.700 42.100
Áætlaður mannfjöldi 234.500 229.000 230.700 230.700 230.100 233.400
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
   
  maí.15 jún.15 júl.15 ágú.15 sep.15 okt.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,5 82,6 82,6 82,5 82,5 82,5
Hlutfall starfandi 79,0 79,1 79,0 79,0 79,0 78,9
Atvinnuleysi 4,3 4,3 4,3 4,3 4,3 4,3
Vinnustundir 40,0 40,1 40,1 40,1 40,2 40,2
Vinnuafl 192.000 192.000 191.800 191.700 191.600 191.600
Starfandi 183.800 183.900 183.700 183.500 183.400 183.500
Atvinnulausir 8.200 8.200 8.200 8.200 8.200 8.200
Utan vinnumarkaðar 40.700 40.500 40.500 40.600 40.700 40.800
Áætlaður mannfjöldi 232.700 232.500 232.300 232.300 232.300 232.400

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.