FRÉTT VINNUMARKAÐUR 22. NÓVEMBER 2018

Áætlað er að 204.700 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í október 2018, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands, en það jafngildir 81,2% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 198.700 starfandi (±6.300) og 6.000 án vinnu og í atvinnuleit (±2.600). Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,9% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9%.

Samanburður mælinga fyrir október 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst um 3.900 manns, en hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 0,6 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 5.200 manns en hlutfall starfandi af mannfjölda var nákvæmlega það sama. Atvinnulausir í október 2018 mældust 1.400 færri en í sama mánuði árið 2017 þegar þeir voru 7.400 eða 3,7% af vinnuaflinu. Alls voru 47.300 utan vinnumarkaðar í október 2018 sem er aukning um 2.800 frá því í október 2017 þegar þeir voru 44.500.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, október 2018 Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, október 2018 Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±1,3; karlar ±1,2; konur ±2,3.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 3,1% í október 2018
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 206.800 í október 2018. Atvinnuþáttaka var 81,9% í október, sem er 0,3 prósentustigum meiri en í september. Samkvæmt árstíðaleiðréttingunni voru atvinnulausir 6.400 í október eða 3,1%, sem er aukning um 1,3 prósentustig síðan í september. Fyrir sama tímabil var leiðrétt hlutfall starfandi fólks 79,4%, sem er 0,8 prósentustigum lægra en það var í september. Þrátt fyrir nokkrar sveiflur í mælingum á vinnuafli þá stendur leitni vinnaflstalna síðustu mánaða og árs nánast í stað, eins og sjá má á myndum 2 og 3 hér að neðan. Hlutfall starfandi jókst um 0,2 prósentustig á síðastliðnum sex mánuðum og á sama tíma lækkaði atvinnuleysi um 0,2 prósentustig.

Mynd 1 Mánaðarlegt atvinnuleysi 16-74 ára

Mynd 2 Mánaðarlegt hlutfall starfandi 16-74 ára

Mynd 3 Mánaðarlegt hlutfall utan vinnumarkaðar 16-74 ára

Mynd 4 Mánaðarlegt atvinnuleysi ungs fólks 16-24 ára

Um gögnin
Vinnumarkaðsrannsóknin í október 2018 nær til fjögurra vikna, frá 1. til og með 28. október. Í úrtak völdust af handahófi 1.555 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.521 einstaklingur. Alls fengust nothæf svör frá 985 einstaklingum og jafngildir það 64,8% svarhlutfalli.

Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra mælinga fyrir október 2018 um atvinnuþátttöku eru ±2,3 prósentustig, hlutfall starfandi ±2,5 prósentustig og atvinnuleysi ±1,3 prósentustig. Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði. Tölur fyrir fyrstu tvo mánuði núverandi ársfjórðungs eru bráðabirgðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1. Vinnumarkaður í október — mæling
ÖryggisbilÖryggisbilÖryggisbil
 2016(±95%)2017(±95%)2018(±95%)
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka82,02,581,92,681,22,3
Hlutfall starfandi79,82,678,92,878,92,5
Atvinnuleysi2,71,23,71,32,91,3
Vinnustundir40,21,340,11,339,61,1
Vinnuafl194.1005.900200.8006.400204.7005.900
Starfandi188.9006.200193.5006.900198.7006.300
Atvinnulausir5.2002.4007.4003.2006.0002.600
Utan vinnumarkaðar42.6005.90044.5006.40047.3005.900
Áætlaður mannfjöldi236.600245.300252.000

Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétting
 maí.18jún.18júl.18ágú.18sep.18okt.18
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka81,080,981,781,781,681,9
Hlutfall starfandi79,778,078,779,580,279,4
Atvinnuleysi1,63,53,62,71,83,1
Vinnustundir39,339,639,740,139,539,6
Vinnuafl201.000201.700204.600204.500205.000206.800
Starfandi197.800194.500197.300199.000201.400200.400
Atvinnulausir3.2007.1007.4005.5003.6006.400
Utan vinnumarkaðar47.00047.60046.00045.90046.20045.600
Áætlaður mannfjöldi248.000249.300250.600250.400251.100252.400

Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétt leitni
 maí.18jún.18júl.18ágú.18sep.18okt.18
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka81,981,881,881,881,981,9
Hlutfall starfandi79,679,679,679,779,779,8
Atvinnuleysi2,82,82,72,72,62,6
Vinnustundir39,739,739,839,839,739,7
Vinnuafl203.000203.300203.700204.200204.700205.200
Starfandi197.300197.700198.200198.800199.400200.000
Atvinnulausir5.7005.6005.5005.4005.3005.200
Utan vinnumarkaðar45.00045.10045.20045.30045.30045.400
Áætlaður mannfjöldi248.000248.400249.000249.500250.000250.600

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.