Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 188.400 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í september 2015, sem jafngildir 81,4% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 181.300 starfandi og 7.100 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,8%. Samanburður mælinga fyrir september 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 2,3 prósentustig og hlutfall starfandi fólks af mannfjölda jókst einnig eða um 2,5 stig. Atvinnuleysi dróst hins vegar saman um 0,3 prósentustig frá því í september 2014, úr 4,1% í 3,8%.
Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára september 2015
Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 4% í september
Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 190.600 í september 2015 sem jafngildir 83% atvinnuþátttöku, sem er 0,4 prósentustigum lægri en hún var í ágúst. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu þá minnkaði hlutfall atvinnulausra lítillega frá því í ágúst eða úr 4,1% í 4% í september. Fjöldi atvinnulausra var 7.600 og minnkaði um 300 manns á milli mánaða. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í september 2015 var 79,7% og minnkaði um 0,3 prósentustig frá því í ágúst. Starfandi fólki fækkaði því um 1.700 manns. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi lækkar lítillega eða um 0,1 prósentustig og um 0,4 stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aukist um 0,2 prósentustig og um 0,6 stig síðustu tólf mánuði.
Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum, eins og sjá má á myndunum hér að framan, og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnar sveiflur frá óreglulegum breytingum. Árstíðaleiðréttingin gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu.
September 2015 nær til fjögurra vikna, frá 31. ágúst til 27. september. Úrtakið var 1.212 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.180 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 906 einstaklingum sem jafngildir 76,8% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,5, hlutfall starfandi ±2,7 og atvinnuleysi ±1,5. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.
Tafla 1. Vinnumarkaður í september - mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2013 | (±95%) | 2014 | (±95%) | 2015 | (±95%) | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 81,8 | 2,5 | 79,2 | 2,6 | 81,4 | 2,5 |
Hlutfall starfandi | 77,6 | 2,7 | 75,9 | 2,7 | 78,4 | 2,7 |
Atvinnuleysi | 5,2 | 1,6 | 4,1 | 1,5 | 3,8 | 1,5 |
Vinnustundir | 41,2 | 1,3 | 39,9 | 1,3 | 40,7 | 1,3 |
Vinnuafl | 186.700 | 5.700 | 183.200 | 6.000 | 188.400 | 5.900 |
Starfandi | 177.000 | 6.100 | 175.700 | 6.300 | 181.300 | 6.300 |
Atvinnulausir | 9.700 | 2.900 | 7.500 | 2.700 | 7.100 | 2.800 |
Utan vinnumarkaðar | 41.500 | 5.700 | 48.200 | 6.000 | 42.900 | 5.900 |
Áætlaður mannfjöldi | 228.200 | • | 231.400 | • | 231.300 | • |
Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting | ||||||
apr.15 | maí.15 | jún.15 | júl.15 | ágú.15 | sep.15 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 82,4 | 82,8 | 82,8 | 81,4 | 83,4 | 83,0 |
Hlutfall starfandi | 78,5 | 78,9 | 80,1 | 78,2 | 80,0 | 79,7 |
Atvinnuleysi | 4,7 | 4,7 | 3,2 | 4,0 | 4,1 | 4,0 |
Vinnustundir | 39,8 | 40,0 | 40,0 | 40,2 | 39,8 | 40,2 |
Vinnuafl | 192.200 | 194.400 | 190.500 | 188.500 | 192.500 | 190.600 |
Starfandi | 183.100 | 185.300 | 184.400 | 181.000 | 184.600 | 182.900 |
Atvinnulausir | 9.100 | 9.100 | 6.100 | 7.500 | 7.900 | 7.600 |
Utan vinnumarkaðar | 41.200 | 40.400 | 39.600 | 43.100 | 38.200 | 39.100 |
Áætlaður mannfjöldi | 233.400 | 234.800 | 230.100 | 231.600 | 230.800 | 229.600 |
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
apr.15 | maí.15 | jún.15 | júl.15 | ágú.15 | sep.15 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 82,4 | 82,5 | 82,6 | 82,6 | 82,5 | 82,5 |
Hlutfall starfandi | 78,8 | 79,0 | 79,0 | 79,0 | 79,0 | 79,0 |
Atvinnuleysi | 4,4 | 4,3 | 4,3 | 4,3 | 4,3 | 4,3 |
Vinnustundir | 40,0 | 40,0 | 40,0 | 40,0 | 40,0 | 40,0 |
Vinnuafl | 191.800 | 192.000 | 192.100 | 191.900 | 191.700 | 191.600 |
Starfandi | 183.400 | 183.800 | 183.800 | 183.600 | 183.500 | 183.500 |
Atvinnulausir | 8.400 | 8.300 | 8.200 | 8.200 | 8.200 | 8.200 |
Utan vinnumarkaðar | 41.000 | 40.700 | 40.500 | 40.500 | 40.600 | 40.700 |
Áætlaður mannfjöldi | 232.800 | 232.700 | 232.600 | 232.400 | 232.300 | 232.300 |