Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 193.500 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í september 2017, sem jafngildir 79,6% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 187.700 starfandi og 5.900 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3%.
Samanburður mælinga fyrir september 2016 og 2017 sýna að atvinnuþátttaka dróst saman um 2,7 prósentustig úr 82,3% í september 2016. Fjöldi starfandi minnkaði um 1.600 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði um 2,7 prósentustig. Fjöldi og hlutfall atvinnulausra stendur hins vegar í stað. Alls voru 49.700 utan vinnumarkaður og fjölgaði þeim um 7.800 manns frá því í september 2016 en þá voru þeir 41.900.
Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára september 2017
Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3% í september
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 197.600 í september 2017 sem jafngildir 81,4% atvinnuþátttöku, sem er lækkun um 0,3 prósentustig frá ágúst 2017. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í september var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 6.000 og fjölgaði um 1.000 manns frá áætluðum fjölda í ágúst. Hlutfall atvinnulausra hækkaði því á milli ágúst og september 2017 um 0,4 prósentustig, úr 2,6% í 3%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í september 2017 var 78,9%, sem er 0,7 stigum lægra en það var í ágúst. Áætlaður fjöldi utan vinnumarkaðar jókst milli mánaða úr 43.800 í 45.100, eða um 1.300 manns. Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuþátttaka hefur dregist saman um 0,6 prósentustig og hlutfall starfandi lækkað um 0,7 prósentustig. Atvinnuleysi jókst hins vegar lítillega eða um 0,1 prósentustig.
Framkvæmd
September 2017 nær til fjögurra vikna, eða frá 4. september til og með 1. október. Í úrtaki vinnumarkaðsrannsóknarinnar voru 1.225 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.187 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 806 einstaklingum sem jafngildir 67,9% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna fyrir september 2017 um atvinnuþátttöku eru ±2,7 prósentustig, hlutfall starfandi ±2,8 prósentustig og atvinnuleysi ±1,3 prósentustig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.
Tafla 1. Vinnumarkaður í september — mæling | ||||||
Öryggisbil | Öryggisbil | Öryggisbil | ||||
2015 | (±95%) | 2016 | (±95%) | 2017 | (±95%) | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 81,4 | 2,5 | 82,3 | 2,2 | 79,6 | 2,7 |
Hlutfall starfandi | 78,3 | 2,7 | 79,9 | 2,3 | 77,2 | 2,8 |
Atvinnuleysi | 3,8 | 1,5 | 3,0 | 1,3 | 3,0 | 1,3 |
Vinnustundir | 40,7 | 1,3 | 41,2 | 1,2 | 39,5 | 1,3 |
Vinnuafl | 187.900 | 5.800 | 195.000 | 5.100 | 193.500 | 6.600 |
Starfandi | 180.800 | 6.200 | 189.300 | 5.400 | 187.700 | 7.000 |
Atvinnulausir | 7.100 | 2.800 | 5.800 | 2.200 | 5.900 | 2.700 |
Utan vinnumarkaðar | 42.900 | 5.800 | 41.900 | 5.100 | 49.700 | 6.600 |
Áætlaður mannfjöldi | 230.800 | • | 237.000 | • | 243.200 | • |
Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting | ||||||
apr.17 | maí.17 | jún.17 | júl.17 | ágú.17 | sep.17 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 83,6 | 82,9 | 82,5 | 81,4 | 81,7 | 81,4 |
Hlutfall starfandi | 81,7 | 80,3 | 80,5 | 79,8 | 79,6 | 78,9 |
Atvinnuleysi | 2,3 | 3,1 | 2,5 | 1,9 | 2,6 | 3,0 |
Vinnustundir | 40,4 | 40,2 | 39,9 | 39,3 | 39,5 | 39,3 |
Vinnuafl | 200.800 | 198.800 | 197.900 | 194.500 | 196.100 | 197.600 |
Starfandi | 196.200 | 192.700 | 193.000 | 190.900 | 191.100 | 191.600 |
Atvinnulausir | 4.600 | 6.100 | 4.900 | 3.600 | 5.000 | 6.000 |
Utan vinnumarkaðar | 39.400 | 41.100 | 41.900 | 44.500 | 43.800 | 45.100 |
Áætlaður mannfjöldi | 240.200 | 239.800 | 239.900 | 239.000 | 239.900 | 242.800 |
Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni | ||||||
apr.17 | maí.17 | jún.17 | júl.17 | ágú.17 | sep.17 | |
Alls 16-74 ára | ||||||
Atvinnuþátttaka | 83,2 | 82,9 | 82,7 | 82,6 | 82,6 | 82,5 |
Hlutfall starfandi | 80,9 | 80,6 | 80,4 | 80,3 | 80,2 | 80,2 |
Atvinnuleysi | 2,8 | 2,8 | 2,8 | 2,9 | 2,9 | 2,9 |
Vinnustundir | 40,0 | 39,9 | 39,8 | 39,6 | 39,5 | 39,5 |
Vinnuafl | 200.100 | 199.100 | 198.400 | 198.300 | 198.300 | 198.300 |
Starfandi | 194.500 | 193.500 | 192.800 | 192.600 | 192.600 | 192.600 |
Atvinnulausir | 5.500 | 5.600 | 5.600 | 5.700 | 5.700 | 5.700 |
Utan vinnumarkaðar | 40.500 | 41.000 | 41.500 | 41.700 | 41.900 | 41.900 |
Áætlaður mannfjöldi | 240.500 | 240.100 | 239.900 | 240.000 | 240.100 | 240.200 |