FRÉTT VINNUMARKAÐUR 15. MAÍ 2024

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir fyrsta ársfjórðung 2024 sýna að staða vinnuafls á íslenskum vinnumarkaði hefur almennt haldist mjög stöðug síðastliðin þrjú ár.

Hlutfall mannfjölda 16 til 74 ára á vinnumarkaði, eða atvinnuþátttaka, mældist 80,4% á fyrsta ársfjórðungi 2024 sem er einu prósentustigi hærra hlutfall en á sama ársfjórðungi 2023 þegar atvinnuþátttaka mældist 79,4%. Fjöldi starfandi fólks á fyrsta ársfjórðungi 2024 var 220.800 manns og var hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda 77,0%.

Frá fyrsta ársfjórðungi 2023 til fyrsta ársfjórðungs 2024 fjölgaði starfandi fólki um 8.500 manns og hlutfall þess af mannfjölda jókst um 0,7 prósentustig. Hlutfall starfandi kvenna var 74,0 % og starfandi karla 79,7%. Starfandi konum fjölgaði um 3.800 á meðan körlum fjölgaði um 4.700. Hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu var 76,8% og utan höfuðborgarsvæðisins 77,4%.

Til samanburðar voru 212.300 starfandi einstaklingar á fyrsta ársfjórðungi 2023 og hlutfall þeirra af mannfjölda 76,3%. Hlutfall starfandi kvenna var 73,0% og starfandi karla 79,4%. Þá var hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu 76,7% og 75,7% utan þess.

Af starfandi fólki á fyrsta ársfjórðungi 2024 voru um 164.000 í fullu starfi, eða 74,3%, og um 56.800 í hlutastarfi eða 25,7%. Fjöldi einstaklinga í fullu starfi jókst um 8.700 frá fyrsta ársfjórðungi 2023 og jókst hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi fólks um 1,1 prósentustig. Af starfandi konum voru 65,3% í fullu starfi á fyrsta ársfjórðungi 2024 og 81,9% af starfandi körlum. Af þeim sem voru í hlutastarfi á fyrsta ársfjórðungi 2024 töldust um 9.900 manns vinnulitlir eða 4,5% af öllum starfandi. Til samanburðar töldust 8.600 manns vinnulitlir á sama ársfjórðungi 2023 eða 4,1%. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.

Meðalfjöldi unninna stunda
Á fyrsta ársfjórðungi 2024 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 34,9 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu. Til samanburðar var meðalfjöldi vinnustunda 37,1 stund á fyrsta ársfjórðungi 2023 og hefur því meðalfjöldi heildarvinnustunda dregist saman um 2,2 klukkustundir á viku. Á fyrsta ársfjórðungi 2024 var meðalfjöldi heildarvinnustunda kvenna 31,7 stundir en 37,6 hjá körlum. Til samanburðar unnu konur að jafnaði 33,1 stund og karlar 40,3 stundir á fyrsta ársfjórðungi 2023. Munur á meðalfjölda heildarvinnustunda karla og kvenna hefur því dregist saman frá því að vera 7,2 stundir á fyrsta ársjórðungi 2023 í 5,9 stundir á fyrsta ársfjórðungi 2024.

Atvinnuleysi 4,2% á fyrsta ársfjórðungi
Á fyrsta ársfjórðungi 2024 töldust að meðaltali 9.700 einstaklingar atvinnulausir eða 4,2% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Á meðal kvenna var atvinnuleysi 3,6% og hjá körlum var það 4,7%. Til samanburðar voru um 8.400 einstaklingar atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi 2023 og var hlutfall þeirra af vinnuafli 3,8%. Atvinnuleysi á meðal kvenna var þá 2,6% og á meðal karla 4,9%.

Hjá þeim sem eru í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 8,3% sem er 0,8 prósentustigum minna en það var á sama ársfjórðungi árið 2023 þegar það var 9,1%. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 3,9%, sem er hálfu prósentustigi meira en það var á fyrsta ársfjórðungi 2023. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið 2,1% samanborið við 1,5% á fyrsta ársfjórðungi 2023.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.