Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir fyrsta ársfjórðung 2026 sýna að 234.900 manns á aldrinum 16–74 ára voru að jafnaði á vinnumarkaði. Af þeim voru 217.800 starfandi og 17.100 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall þeirra af mannfjölda, eða atvinnuþátttaka, var 80,3%. Hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda var 74,4% og atvinnuleysi var 7,3% af öllum 16-74 ára á vinnumarkaði.
Á fyrsta ársfjórðungi 2026 voru 100.500 konur starfandi, eða 71,1%, en karlar voru 117.300 eða 77,5%. Að jafnaði voru 195.000 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 89,5% starfandi fólks og 66,6% af heildarmannfjölda 16–74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku var 36,6 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 41,2 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi og 21,5 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi.
Samanborið við fyrsta ársfjórðung 2025 fækkaði starfandi fólki um 2.700 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði um 2,1 prósentustig. Þegar litið er til kynja fækkaði starfandi konum um 2.300 á meðan starfandi körlum fækkaði um 400. Hlutfall starfandi kvenna lækkaði því á milli ára um 2,6 prósentustig og hlutfall starfandi karla um 1,6 prósentustig.
Af starfandi fólki á fyrsta ársfjórðungi 2026 voru um 163.800 í fullu starfi, eða 75,2%, og um 54.000 í hlutastarfi eða 24,8%. Fjöldi þeirra sem voru í fullu starfi jókst um eitt þúsund manns frá fyrsta ársfjórðungi 2025 og hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi hækkaði um 1,4 prósentustig. Af starfandi konum voru 66,0% í fullu starfi á fyrsta ársfjórðungi og 83,1 % starfandi karla. Af þeim sem voru í hlutastarfi töldust um 11.000 manns vinnulitlir eða 5,1% af öllum starfandi. Á sama ársfjórðungi 2025 voru 4,8% vinnulitlir en þá var fjöldi þeirra 10.700. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.
Meðalfjöldi unninna stunda
Á fyrsta ársfjórðungi 2026 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 36,6 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu. Til samanburðar var meðalfjöldi vinnustunda 35,7 stundir á fyrsta ársfjórðungi 2025. Hefur meðalfjöldi heildarvinnustunda því aukist um tæpa klukkustund á viku. Á fyrsta ársfjórðungi 2026 var meðalfjöldi heildarvinnustunda kvenna 32,9 stundir en 39,7 stundir hjá körlum. Til samanburðar unnu konur að jafnaði 32,1 stund og karlar 38,7 stundir á fyrsta ársfjórðungi 2025.
Atvinnuleysi 7,3%
Á fyrsta ársfjórðungi 2026 töldust að meðaltali 17.100 einstaklingar atvinnulausir eða 7,3% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Mældist atvinnuleysið 7,0% hjá konum og 7,5% hjá körlum. Til samanburðar voru um 11.500 einstaklingar atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi 2025 og var hlutfall þeirra af vinnuafli nokkru lægra en nú eða 5,0%. Atvinnuleysi á meðal kvenna var þá 4,8% og 5,1% á meðal karla.
Í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 18,0% en var 12,2% á sama ársfjórðungi árið 2025. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 6,2% sem er 2,1 prósentustigum meira en það var á fyrsta ársfjórðungi 2025. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið 2,6% samanborið við 1,9% á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs.
Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands
Frá árinu 2003 hefur Vinnumarkaðsrannsókn verið framkvæmd samfellt allar vikur og allt árið um kring. Í hverjum ársfjórðungi eru rúmlega 5.000 manns í úrtaki sem er skipt jafnt niður á allar 13 vikur fjórðungsins. Í þýði vinnumarkaðsrannsóknar eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar á 16–74 ára sem skráðir eru í þjóðskrá, eiga lögheimili og eru búsettir á Íslandi í viðmiðunarviku rannsóknarinnar. Á fyrsta ársfjórðungi 2026 voru 5.353 einstaklingar sem uppfylltu þessi skilyrði í endanlegu úrtaki rannsóknarinnar, eða 1,8% af mannfjölda. Heildarfjöldi þeirra sem svöruðu var 2,811 sem samsvarar 52,5% þátttöku. Svarhlutfall kvenna var 51,1% og karla var 53,8%.