FRÉTT VINNUMARKAÐUR 15. ÁGÚST 2024

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir annan ársfjórðung 2024 sýna að atvinnuþátttaka fólks á aldrinum 16 til 74 ára hefur aldrei mælst meiri frá því samfelld mæling hófst árið 2003. Atvinnuþátttakan mældist 83,6% og þarf að leita aftur til ársins 2016 til finna sambærilega mælingu.

Fjöldi fólks á aldrinum 16 til 74 ára sem var á vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2024 var 241.600 manns. Hlutfall þeirra af mannfjölda, eða atvinnuþátttaka, var eins og áður segir 83,6% sem er 1,7 prósentustigi hærra hlutfall en á sama ársfjórðungi 2023 þegar atvinnuþátttaka mældist 81,9%. Konur voru 109.600 eða 79,6% atvinnuþátttaka og karlar voru 132.000 eða 87.3% atvinnuþátttaka.

Fjöldi starfandi fólks á öðrum ársfjórðungi 2024 var 232.900 manns og var hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda 80,6%. Frá öðrum ársfjórðungi 2023 til annars ársfjórðungs 2024 fjölgaði starfandi fólki um 10.800 manns og hlutfall þess af mannfjölda jókst um eitt og hálft prósentustig. Hlutfall starfandi kvenna var 77,3 % og starfandi karla 83,7%. Starfandi konum fjölgaði um 4.500 á meðan körlum fjölgaði um 6.400. Hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu var 79,8% og utan höfuðborgarsvæðisins 82,1%. Til samanburðar voru 222.100 starfandi einstaklingar á öðrum ársfjórðungi 2023 og hlutfall þeirra af mannfjölda 79,3%. Hlutfall starfandi kvenna var 75,8% og starfandi karla 82,2%. Þá var hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu 79,4% og 78,6% utan þess.

Af starfandi fólki á öðrum ársfjórðungi 2024 voru um 177.900 í fullu starfi, eða 76,4%, og um 55.000 í hlutastarfi eða 23,6%. Fjöldi einstaklinga í fullu starfi jókst um 7.000 frá öðrum ársfjórðungi 2023 en hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi fólks lækkaði um 0.6 prósentustig. Af starfandi konum voru 64,5% í fullu starfi á öðrum ársfjórðungi og 86,3% af starfandi körlum. Af þeim sem voru í hlutastarfi töldust um 10.700 manns vinnulitlir eða 4,6% af öllum starfandi. Til samanburðar töldust 9.300 manns vinnulitlir á sama ársfjórðungi 2023 eða 4,2%. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.

Meðalfjöldi unninna stunda
Á öðrum ársfjórðungi 2024 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 36,4 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu. Til samanburðar var meðalfjöldi vinnustunda 35,8 stundir á öðrum ársfjórðungi 2023 og hefur því meðalfjöldi heildarvinnustunda aukist um rétt rúman hálftíma á viku eða 36 mínútur. Á öðrum ársfjórðungi 2024 var meðalfjöldi heildarvinnustunda kvenna 32,5 stundir en 39,5 hjá körlum. Til samanburðar unnu konur að jafnaði 31,9 stundir og karlar 38,9 stundir á öðrum ársfjórðungi 2023. Sami munur er á meðalfjölda heildarvinnustunda karla og kvenna á öðrum ársfjórðungi 2023 og 2024 eða sjö stundir.

Atvinnuleysi 3,6% á öðrum ársfjórðungi
Á öðrum ársfjórðungi 2024 töldust að meðaltali 8.700 einstaklingar atvinnulausir eða 3,6% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Á meðal kvenna var atvinnuleysi 3,0% og hjá körlum var það 3,4%. Til samanburðar voru um 7.800 einstaklingar atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi 2023 og var hlutfall þeirra af vinnuafli 3,4%. Atvinnuleysi á meðal kvenna var þá 2,6% og á meðal karla 4,1%.

Hjá þeim sem eru í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 11,1% sem er 1,4 prósentustigum hærra en það var á sama ársfjórðungi árið 2023 þegar það var 9,7%. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 2,6%, sem er aðeins 0,1 prósentustigi lægra en það var á öðrum ársfjórðungi 2023. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið 1,1% samanborið við 1,0% á öðrum ársfjórðungi 2023.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.