FRÉTT VINNUMARKAÐUR 04. SEPTEMBER 2026

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir annan ársfjórðung 2026 sýna að 237.700 manns á aldrinum 16–74 ára voru að jafnaði á vinnumarkaði. Af þeim voru 222.300 starfandi og 15.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall þeirra af mannfjölda, eða atvinnuþátttaka, var 81,1%. Hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda var 75,8%. Á meðal allra 16 – 74 ára á vinnumarkaði var atvinnuleysi var 6,5%.

Á öðrum ársfjórðungi 2026 voru 102.700 konur starfandi, eða 72,4%, en karlar voru 119.600 eða 79%. Að jafnaði voru 199.400 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 89,7% starfandi fólks og 68% af heildarmannfjölda 16–74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku var 35,6 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 39,2 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi og 22,3 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Samanborið við annan ársfjórðung 2025 fækkaði starfandi fólki um 9.000 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði um 4,3 prósentustig. Þegar litið er til kynja fækkaði starfandi konum um 5.700 á meðan starfandi körlum fækkaði um 3.300. Hlutfall starfandi kvenna lækkaði því á milli ára um 5,1 prósentustig en hlutfall starfandi karla um 3,4 prósentustig.

Af starfandi fólki á öðrum ársfjórðungi 2026 voru um 173.500 í fullu starfi, eða 78%, og um 48.900 í hlutastarfi eða 21,9%. Fækkun varð á þeim sem voru í fullu starfi um 3.800 manns frá öðrum ársfjórðungi 2025 og hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi hækkaði um 1,4 prósentustig. Af starfandi konum voru 65,4% í fullu starfi á öðrum ársfjórðungi og 83,4 % starfandi karla. Af þeim sem voru í hlutastarfi töldust um 9.200 manns vinnulitlir eða 4,2% af öllum starfandi. Á sama ársfjórðungi 2025 voru 3,3% vinnulitlir en þá var fjöldi þeirra 7.700. Vinnulitlir eru þeir sem eru í hlutastarfi sem bæði geta og vilja vinna fleiri vinnustundir en þeir gera.

Meðalfjöldi venjulegra vinnustunda
Á öðrum ársfjórðungi 2026 var meðalfjöldi venjulegra vinnustunda á viku 38,1 klukkustundir í aðalstarfi. Venjulegar vinnustundir á viku eru þær klukkustundir sem fólk telur sig vinna að jafnaði í aðalstarfi sínu í hefðbundinni vinnuviku. Til samanburðar var meðalfjöldi venjulegra vinnustunda 37,8 stundir á öðrum ársfjórðungi 2025. Á öðrum ársfjórðungi 2026 voru venjulegar vinnustundir kvenna að meðaltali 35 stundir en 40,8 stundir hjá körlum. Á sama ársfjórðungi 2025 voru þær að meðaltali 34,4 stundir hjá konum en óbreyttur hjá körlum.

Atvinnuleysi 6,5%
Á öðrum ársfjórðungi 2026 töldust að meðaltali 15.400 einstaklingar atvinnulausir eða 6,5% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Mældist atvinnuleysið 6,8% hjá konum og 6,1% hjá körlum. Til samanburðar voru um 8.400 einstaklingar atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi 2025 og var hlutfall þeirra af vinnuafli nokkru lægra en nú eða 3,5%. Atvinnuleysi á meðal kvenna var þá 3,4% og 3,6% á meðal karla.

Í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 17,3% en var 7,6% á sama ársfjórðungi árið 2025. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 4,9% sem er 1,7 prósentustigum meira en það var á öðrum ársfjórðungi 2025. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið 2,2% samanborið við 1,2% á öðrum ársfjórðungi síðasta árs.

Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar frá 2021 hafa verið endurreiknaðar með nákvæmari aðferð við flokkun einstaklinga eftir stöðu á vinnumarkaði sem tryggir fullt samræmi við skilgreiningar vinnumarkaðsrannsóknar evrópska hagskýrslusamstarfsins (EU-LFS). Uppfærslan felur í sér að fleiri upplýsingar úr rannsókninni eru nýttar við mat á atvinnuþátttöku og atvinnuleit, meðal annars upplýsingar um tilfallandi störf og aðferðir við atvinnuleit. Breytingin hefur minniháttar áhrif á áður birtar niðurstöður en veldur broti í tímaröðinni milli áranna 2020 og 2021.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.