FRÉTT VINNUMARKAÐUR 31. OKTÓBER 2024

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir þriðja ársfjórðung 2024 sýna að atvinnuþátttaka hélst stöðug miðað við annan ársfjórðung 2024 eða 83,8% fyrir aldurshópinn 16-74 ára. Í samanburði við önnur Evrópulönd er þetta hlutfall mjög hátt. Næstu þjóðir á eftir Íslandi eru Svíþjóð, Holland, Eistland og Sviss með að jafnaði um og yfir 75% atvinnuþátttöku fólks.

Fjöldi fólks á aldrinum 16 til 74 ára sem var á vinnumarkaði á þriðja ársfjórðungi 2024 var 244.000 manns. Hlutfall þeirra af mannfjölda, eða atvinnuþátttaka, var eins og áður segir 83,8% sem er 2,8 prósentustigum hærra hlutfall en á sama ársfjórðungi 2023 þegar atvinnuþátttaka mældist 81,0%. Konur voru 108.700, eða 78,4% atvinnuþátttaka, og karlar voru 135.300 eða 88.6% atvinnuþátttaka.

Fjöldi starfandi fólks á þriðja ársfjórðungi 2024 var 236.800 manns og var hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda 81,3%. Frá þriðja ársfjórðungi 2023 til annars ársfjórðungs 2024 fjölgaði starfandi fólki um 14.200 manns og hlutfall þess af mannfjölda jókst um 2,7 prósentustig. Hlutfall starfandi kvenna var 76,0 % og starfandi karla 86,1%. Starfandi konum fjölgaði um 3.900 á meðan körlum fjölgaði umtalsvert meira eða um 10.200. Hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu var 81,2% og utan höfuðborgarsvæðisins 81,5%.

Til samanburðar voru 222.600 starfandi einstaklingar á þriðja ársfjórðungi 2023 og hlutfall þeirra af mannfjölda 78,6%. Hlutfall starfandi kvenna var 74,8% og starfandi karla 82,0%. Þá var hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu 78,4% og 78,8% utan þess.

Af starfandi fólki á þriðja ársfjórðungi 2024 voru um 183.200 í fullu starfi, eða 77,4%, og um 53.600 í hlutastarfi eða 22,6%. Fjöldi einstaklinga í fullu starfi jókst um 10.600 frá þriðja ársfjórðungi 2023 en hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi stóð nánast í stað. Af starfandi konum voru 65,6% í fullu starfi á þriðja ársfjórðungi og 86,8% af starfandi körlum. Af þeim sem voru í hlutastarfi töldust um 8.100 manns vinnulitlir eða 3,4% af öllum starfandi. Sama hlutfall starfandi voru vinnulitlir á sama ársfjórðungi 2023 en þá var fjöldi þeirra 7.700. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.

Meðalfjöldi unninna stunda
Á þriðja ársfjórðungi 2024 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 38,1 klukkustund hjá þeim sem voru við vinnu. Til samanburðar var meðalfjöldi vinnustunda 37,6 stundir á þriðja ársfjórðungi 2023 og hefur því meðalfjöldi heildarvinnustunda aukist um hálftíma á viku. Á þriðja ársfjórðungi 2024 var meðalfjöldi heildarvinnustunda kvenna 34,0 stundir en 40,9 hjá körlum. Til samanburðar unnu konur að jafnaði 33,8 stundir og karlar 40,6 stundir á þriðja ársfjórðungi 2023. Munur á meðalfjölda heildarvinnustunda karla og kvenna á þriðja ársfjórðungi 2024 var 6,9 stundir.

Atvinnuleysi 3,0% á þriðja ársfjórðungi
Á þriðja ársfjórðungi 2024 töldust að meðaltali 7.300 einstaklingar atvinnulausir eða 3,0% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Á meðal kvenna var atvinnuleysi 3,1% og hjá körlum var það 2,9%. Til samanburðar voru um 6.800 einstaklingar atvinnulausir á þriðja ársfjórðungi 2023 og var hlutfall þeirra af vinnuafli eins og nú 3,0% og einnig það sama hjá konum og körlum.

Hjá þeim sem eru í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 8,9% sem er 3,6 prósentustigum hærra en það var á sama ársfjórðungi árið 2023 þegar það var 5,3%. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 1,7% sem er aðeins einu og hálfu prósentustigi lægra en það var á þriðja ársfjórðungi 2023. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið 2,9% samanborið við 1,1% á þriðja ársfjórðungi 2023.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.