Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir fjórða ársfjórðung 2022 sýna að staða vinnuafls á íslenskum vinnumarkaði hefur batnað frá árinu áður. Það má til dæmis sjá á því að hlutfall starfandi fólks hefur aukist og dregið nokkuð úr atvinnuleysi.
Hlutfall mannfjölda 16 til 74 ára á vinnumarkaði, eða atvinnuþátttaka, mældist 79,5% á fjórða ársfjórðungi 2022 sem er aukning um 0,9 prósentustig frá sama ársfjórðungi 2021. Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2022 var 212.400 manns og var hlutfall starfandi af mannfjölda 76,9%. Frá fjórða ársfjórðungi 2021 til fjórða ársfjórðungs 2022 fjölgaði starfandi fólki um 11.900 manns og hlutfall þess af mannfjölda hækkaði um 1,8 prósentustig. Hlutfall starfandi kvenna var 74,7 % og starfandi karla 79,0%. Starfandi konum fjölgaði um 6.000 og körlum um 5.700. Hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu var 77,7% og utan höfuðborgarsvæðis 75,5%.
Til samanburðar voru 200.500 starfandi á fjórða ársfjórðungi 2021 og hlutfall af mannfjölda var 75,1%. Hlutfall starfandi kvenna var 72,1% og starfandi karla 77,9%. Þá var hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu 75,8% og 73,8% utan höfuðborgarsvæðisins.
Af starfandi fólki á fjórða ársfjórðungi 2022 voru 156.600 í fullu starfi, eða 73,7%, og 55.700 í hlutastarfi eða 26,3%. Þrátt fyrir að fólki í fullu starfi hafi fjölgað um 9.500 frá fjórða ársfjórðungi 2021 jókst hlutfall þess af fjölda starfandi ekki nema um 0,4 prósentustig. Af starfandi konum voru 62,6% í fullu starfi á fjórða ársfjórðungi 2021 og 83,5% af starfandi körlum. Af þeim sem voru í hlutastarfi á fjórða ársfjórðungi 2022 voru um 7.100 manns sem teljast vinnulitlir. Til samanburðar töldust 9.300 manns vinnulitlir á sama ársfjórðungi 2021 eða 4,6%. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.
Litlar breytingar á meðalfjölda vinnustunda
Á fjórða ársfjórðungi 2022 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 36,1 klukkustund hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni. Heildarvinnustundir kvenna voru að meðaltali 32,8 stundir en 38,9 stundir hjá körlum. Til samanburðar var meðalfjöldi vinnustunda á fjórða ársfjórðungi 2021 nákvæmlega sá sami og meðalfjöldinn var á fjórða ársfjórðungi 2022. Konur unnu þá að jafnaði 31,5 stundir og karlar að jafnaði 39,9 stundir. Konur unnu að jafnaði 1,3 stundum fleiri nú en á fjórða ársfjórðungi 2021 en karlar einni stund skemur.
Nokkur samdráttur í atvinnuleysi
Á fjórða ársfjórðungi 2022 töldust að meðaltali 7.200 einstaklingar atvinnulausir eða um 3,3% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Atvinnuleysi kvenna var 2,5% og karla 3,9%. Til samanburðar voru um 9.300 einstaklingar atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2021 og var hlutfall þeirra af vinnuafli þá 4,4%. Atvinnuleysi á meðal kvenna var þá 3,6% og á meðal karla var það 5,1%.
Sé horft til aldurshópsins 16 til 24 ára var atvinnuleysi 5,8% sem er nokkur lækkun frá sama ársfjórðungi árið 2021 þegar það var 7,8% eða um tvö prósentustig. Á tímabilinu minnkaði atvinnuleysi hjá þeim sem voru á aldrinum 25 til 54 ára um 0,8 prósentustig fór úr 4,1% í 3,3%. Atvinnuleysi minnkaði einnig hjá þeim sem voru á aldrinum 55 til 74 ára eða um 1,8 prósentustig, fór úr 3,3% á fjórða ársfjórðungi 2021 í 1,5% á fjórða ársfjórðungi 2022.