Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir fjórða ársfjórðung 2024 sýna að 230.500 manns á aldrinum 16–74 ára voru að jafnaði á vinnumarkaði. Af þeim voru 223.800 starfandi og 6.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall þeirra af mannfjölda, eða atvinnuþátttaka, var 80,1%. Hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda var 77,7% og atvinnuleysi var 2,9% af öllum 16-74 ára á vinnumarkaði.
Á fjórða ársfjórðungi 2024 voru 101.100 konur starfandi eða 72,6% en karlar voru 122.700 eða 82,6%. Á fjórða ársfjórðungi 2024 voru að jafnaði 197.900 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 88,4% starfandi fólks og 68,8% af heildarmannfjölda 16–74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku var 36,5 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 40,6 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi og 22,5 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi.
Samanborið við fjórða ársfjórðung 2023 fjölgaði starfandi fólki um 4.500 en hlutfall starfandi af mannfjölda stóð nánast í stað. Fjöldi starfandi kvenna fækkaði um tæplega 100 á meðan körlum fjölgaði um nálega 4.600. Hlutfall starfandi kvenna lækkaði því um 1,3 prósentustig á meðan hlutfall starfandi karla jókst um eitt og hálft prósentustig. Atvinnuleysi dróst saman þegar á heildina er litið um 0,3 prósentustig, 0,3 hjá konum og 0,2 hjá körlum. Atvinnulausum konum fækkaði um 300 á milli ára og körlum um 100 manns.
Af starfandi fólki á fjórða ársfjórðungi 2024 voru um 168.600 í fullu starfi, eða 75,3%, og um 55.200 í hlutastarfi eða 24,7%. Fjöldi einstaklinga í fullu starfi jókst um 1.800 frá fjórða ársfjórðungi 2023 og hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi lækkaði um 0,7 prósentustig. Af starfandi konum voru 63,3% í fullu starfi á fjórða ársfjórðungi og 85,2% af starfandi körlum. Af þeim sem voru í hlutastarfi töldust um 9.100 manns vinnulitlir eða 4,1% af öllum starfandi. Á sama ársfjórðungi 2023 voru 3,5% vinnulitlir en þá var fjöldi þeirra 7.600. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.
Meðalfjöldi unninna stunda
Á fjórða ársfjórðungi 2024 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 36,5 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu. Til samanburðar var meðalfjöldi vinnustunda 35,3 stundir á fjórða ársfjórðungi 2023 og hefur því meðalfjöldi heildarvinnustunda aukist um rúma klukkustund á viku. Á fjórða ársfjórðungi 2024 var meðalfjöldi heildarvinnustunda kvenna 33,2 stundir en 39,1 hjá körlum. Til samanburðar unnu konur að jafnaði 31,3 stundir og karlar 38,7 stundir á fjórða ársfjórðungi 2023. Munur á meðalfjölda heildarvinnustunda karla og kvenna á fjórða ársfjórðungi 2024 var 5,9 stundir.
Atvinnuleysi 2,9% á fjórða ársfjórðungi
Á fjórða ársfjórðungi 2024 töldust að meðaltali 6.800 einstaklingar atvinnulausir eða 2,9% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Mældist atvinnuleysið það sama á meðal karla og kvenna. Til samanburðar voru um 7.200 einstaklingar atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2023 og var hlutfall þeirra af vinnuafli litlu hærra en nú eða 3,2% en þá var atvinnuleysi 3,2% hjá konum og nálægt það sama hjá körlum eða 3,1%.
Hjá þeim sem eru í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 8,6% sem er sama hlutfall var á sama ársfjórðungi árið 2023. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 1,8% sem er 0,8 prósentustigi lægra en það var á fjórða ársfjórðungi 2023. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið 2,4% samanborið við 1,1% á fjórða ársfjórðungi 2023.
Endurskoðun mannfjölda í vinnumarkaðsrannsókn - greinargerð