FRÉTT VINNUMARKAÐUR 05. FEBRÚAR 2026

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir fjórða ársfjórðung 2025 sýna að 233.600 manns á aldrinum 16–74 ára voru að jafnaði á vinnumarkaði. Af þeim voru 221.800 starfandi og 11.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall þeirra af mannfjölda, eða atvinnuþátttaka, var 80,0%. Hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda var 76,0% og atvinnuleysi var 5,0% af öllum 16-74 ára á vinnumarkaði.

Á fjórða ársfjórðungi 2025 voru 102.300 konur starfandi, eða 72,3%, en karlar voru 119.500 eða 79,4%. Að jafnaði voru 200.400 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 90,4% starfandi fólks og 68,7% af heildarmannfjölda 16–74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku var 35,8 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 40,5 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi og 22,2 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Samanborið við fjórða ársfjórðung 2024 fækkaði starfandi fólki um 2.000 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði um 1,7 prósentustig. Þegar litið er til kynja þá jókst fjöldi starfandi kvenna um 1.200 á meðan starfandi körlum fækkaði um 3.200. Þrátt fyrir fjölgun starfandi kvenna á milli ára þá lækkaði hlutfall þeirra af mannfjölda lítillega eða 0,2 prósentustig og hlutfall starfandi karla af mannfjölda lækkaði um 3,2 prósentustig.

Af starfandi fólki á fjórða ársfjórðungi 2025 voru um 164.400 í fullu starfi, eða 74,1%, og um 57.400 í hlutastarfi eða 25,9%. Fjöldi þeirra sem voru í fullu starfi fækkaði um 4.200 starfi frá fjórða ársfjórðungi 2024 hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi lækkaði um 1,2 prósentustig. Af starfandi konum voru 65,4% í fullu starfi á fjórða ársfjórðungi og 81,5 % starfandi karla. Af þeim sem voru í hlutastarfi töldust um 11.500 manns vinnulitlir eða 5,2% af öllum starfandi. Á sama ársfjórðungi 2024 voru 4,1% vinnulitlir en þá var fjöldi þeirra 9.100. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.

Meðalfjöldi unninna stunda
Á fjórða ársfjórðungi 2025 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 35,8 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu. Til samanburðar var meðalfjöldi vinnustunda 36,5 stundir á fjórða ársfjórðungi 2024 og hefur því meðalfjöldi heildarvinnustunda minnkað um tæpa klukkustund á viku. Á fjórða ársfjórðungi 2025 var meðalfjöldi heildarvinnustunda kvenna 32,7 stundir en 38,4 stundir hjá körlum. Til samanburðar unnu konur að jafnaði 33,2 stundir og karlar 39,1 stund á fjórða ársfjórðungi 2024.

Atvinnuleysi fimm prósent
Á fjórða ársfjórðungi 2025 töldust að meðaltali 11.800 einstaklingar atvinnulausir eða 5,0% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Mældist atvinnuleysið 5,7% hjá konum og 4,4% hjá körlum. Til samanburðar voru um 6.800 einstaklingar atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2024 og var hlutfall þeirra af vinnuafli töluvert lægra en nú eða 2,9% og sama atvinnuleysi mældist bæði hjá konum og körlum.

Hjá þeim sem eru í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 10,1% en var 8,6% á sama ársfjórðungi árið 2024. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 4,9% sem er 3,2 prósentustigum meira en það var á fjórða ársfjórðungi 2024. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið 1,7% samanborið við 2,4% á fjórða ársfjórðungi síðasta árs.

Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands
Frá árinu 2003 hefur Vinnumarkaðsrannsókn verið framkvæmd samfellt allar vikur og allt árið um kring. Í hverjum ársfjórðungi eru rúmlega 5.000 manns í úrtaki sem er skipt jafnt niður á allar 13 vikur fjórðungsins. Í þýði vinnumarkaðsrannsóknar eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar á 16–74 ára sem skráðir eru í þjóðskrá, eiga lögheimili og eru búsettir á Íslandi í viðmiðunarviku rannsóknarinnar. Úrtakið er síðan valið með einfaldri slembiúrtöku. Á fjórða ársfjórðungi 2025 voru 5.377 einstaklingar sem uppfylltu þessi skilyrði í endanlegu úrtaki rannsóknarinnar, eða 1,8% af mannfjölda. Heildarfjöldi þeirra sem svöruðu var 2,616 sem samsvarar 49,0% þátttöku. Svarhlutfall kvenna var 49,4% og karla var 48,6%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.