FRÉTT VINNUMARKAÐUR 02. MARS 2023

Árið 2022 voru að jafnaði um 217.600 manns á vinnumarkaði samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn. Af þeim voru rúmlega 209.400 starfandi og um 8.100 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 80,1%, hlutfall starfandi af mannfjölda 77,1% og atvinnuleysi var 3,7%. Atvinnulausum fækkaði um rúm 4.300 frá árinu 2021 og atvinnuleysið dróst saman um 2,2 prósentustig á milli ára. Atvinnuleysi á meðal kvenna var 3,4% að jafnaði og á meðal karla var það 4,0%. Árið 2022 var atvinnuleysi að jafnaði 4,3% í Reykjavík, 3,6% í nágrenni Reykjavíkur og 3,4% utan höfuðborgarsvæðisins.

Áætlað er að af öllum starfandi hafi konur verið að jafnaði um 97.100 allt árið 2022 og karlar um 112.400. Ekki var nægjanlegur fjöldi í úrtaki vinnumarkaðsrannsóknar til að greina frekar fjölda kynsegin/annað en samkvæmt talningu úr staðgreiðslugögnum voru 55 kynsegin/annað samkvæmt þjóðskrá starfandi að jafnaði árið 2022.

Heildarvinnustundir þeirra sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni voru að meðaltali 36,5 klukkustundir á viku árið 2022. Heildarvinnustundir kvenna á viku voru 32,6 klukkustundir og karla 39,7 klukkustundir. Fólk utan höfuðborgarsvæðisins vinnur að jafnaði fleiri vinnustundir á viku en þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Meðalfjöldi vinnustunda fólks í Reykjavík árið 2022 var 34,9 klukkustundir, hjá íbúum nágrennis Reykjavíkur voru stundirnar að jafnaði 35,7 en íbúar utan höfuðborgarsvæðisins unnu að jafnaði 38,5 klukkustundir.

Þegar þróun menntunar og starfandi er skoðuð yfir 20 ára tímabil má meðal annars sjá að háskólamenntuðum á vinnumarkaði hefur fjölgað mjög eða úr 24,2% í 39,7% allra starfandi á íslenskum vinnumarkaði samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn. Á sama tíma hefur hlutfall þeirra sem aðeins hafa lokið grunnmenntun dregist verulega saman. Hlutur þeirra sem hafa lokið starfs- og/eða framhaldsmenntun að einhverju leyti hefur staðið í stað.

Samkvæmt staðgreiðslugögnum hefur hlutfall starfandi innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði fjórfaldast frá árinu 2003, úr 5,1% af öllum starfandi í 20,6% árið 2022. Innflytjandi er einstaklingur með lögheimili á Íslandi sem er fæddur erlendis og á foreldra, afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis.

Vinnuafl á íslenskum vinnumarkaði árið 2022 - Hagtíðindi

Lýsigögn

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.