Atvinnuleysi var 4,5% í ágúst 2022 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,5% og hlutfall starfandi 76,0%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,4 prósentustig á milli mánaða og hlutfall starfandi jókst um 0,3 prósentustig. Leitni árstíðaleiðrétts atvinnuleysis hefur aukist um 0,2 prósentustig síðustu sex mánuði á sama tíma og leitni hlutfalls starfandi hefur dregist saman um 0,7 prósentustig.
Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknarinnar, án árstíðaleiðréttingar, voru 218.900 (±7.600) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í ágúst 2022 sem jafngildir 80,2% (±2,8) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 210.400 (±6.600) einstaklingar starfandi og 8.500 (±3.400) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,0% (±3,1) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 3,9% (±1,6). Samanborið við ágúst 2021 dróst atvinnuleysi saman um 1,3 prósentstig á milli ára á meðan hlutfall starfandi jókst um 1,2 prósentustig.
Áætlað er að 19.700 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) í ágúst 2022 sem jafngildir 8,8% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Slaki á vinnumarkaði hefur dregist saman um 3,4 prósentustig á milli ára samanborið við ágúst 2021. Árstíðaleiðrétt leitni slaka hefur aukist um 0,2 prósentustig síðustu sex mánuði. Af þeim sem höfðu óuppfyllta þörf fyrir atvinnu í ágúst 2022 voru 14,1% tilbúnir að vinna en ekki að leita og 11,7% í leit að vinnu en ekki tilbúnir að vinna. Í þessum hópi voru 43,0% atvinnulausir og 31,2% töldust til vinnulítilla.
Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðum þar sem tölur eru námundaðar að næsta hundraði.
Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir ágúst 2022 ná til fjögurra vikna frá 31. júlí til og með 28. ágúst. Í úrtak völdust af handahófi 1.536 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.507 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 870 einstaklingum sem jafngildir 57,7% svarhlutfalli.