FRÉTT VINNUMARKAÐUR 30. SEPTEMBER 2025

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 5,3% í ágúst 2025. Fjöldi atvinnulausra var um 12.800. Hlutfall starfandi var 78,6%, sem samsvarar tæplega 228.900 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 83% eða um 241.700 manns á vinnumarkaði.

Samanborið við sama mánuð 2024 jókst atvinnuleysi um 2,9 prósentustig, hlutfall starfandi dróst saman um 4,9 prósentustig og atvinnuþátttaka dróst saman um 2,6 stig. Meira atvinnuleysi skýrist fyrst og fremst af auknu atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 – 24 ára þó það hafi einnig aukist hjá eldri aldurshópum.

Eftir árstíðaleiðréttingu mælingarinnar fyrir ágúst 2025 mældist atvinnuleysi 5,7%. Árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 77,3% og atvinnuþátttaka 82,0%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 1,6 prósentustig á milli júlí og ágúst. Hlutfall starfandi á milli þessara mánaða dróst saman um 0,5 prósentustig en atvinnuþátttaka jókst um 0,9 prósentustig.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.