Fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára var 15.900 í ágúst 2026 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 6,8%, hlutfall starfandi var 73,7% og atvinnuþátttaka 79%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,2 prósentustig á milli júlí og ágúst 2026, hlutfall starfandi hækkaði um 0,2 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,3 prósentustig.
Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi 6% í ágúst 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 14.100. Hlutfall starfandi var 75,2%, sem samsvarar tæplega 221.300 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 79,9% eða um 235.300 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 0,7 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 3,6 prósentustig og atvinnuþátttaka dróst saman um 3,3 prósentustig.