TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 28. MAÍ 2025

Atvinnuleysi var 3,3% í apríl 2025 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 78,6% og atvinnuþátttaka 81,3%.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 0,4 prósentustig á milli mánaða, hlutfall starfandi jókst um 0,3 prósentustig og atvinnuþátttaka stóð í stað.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi á meðal karla var 3,6% í apríl og jókst um 0,5 prósentustig á milli mánaða á meðan atvinnuleysi á meðal kvenna var 3,0% og dróst saman um 1,3 prósentustig.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.