FRÉTT VINNUMARKAÐUR 23. JANÚAR 2020

Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar voru atvinnulausir 7.300 í desember, eða 3,9% af vinnuaflinu. Það er 0,2 prósentustigum lægra en í nóvember. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 80,7%, sem er um 0,1 prósentustigum hærra en í nóvember. Árstíðarleiðrétt hlutfall starfandi fólks var 77,6%, eða um 0,2 prósentustigum hærra en í nóvember.

Árstíðarleiðrétt leitni atvinnuleysis hefur verið stöðug undanfarin misseri. Sjá má örlítinn stíganda upp á við sé horft til síðustu sex mánaða, eða úr 3,6% í júlí í 3,8% í desember. Leitni hlutfalls starfandi hefur einnig verið stöðug sé horft til síðustu sex mánaða.

Samkvæmt óleiðréttri mælingu er áætlað að um 207.200 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í desember 2019. Það jafngildir 79,8% (± 2,9) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu reyndust 200.700 (±4.900) vera starfandi og 6.700 (±1.000) án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,3% (±2,6) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,2% (±1,1).

Frá desember 2018 hefur atvinnuleysi aukist um 1,8 prósentustig, en á sama tíma hefur atvinnuþáttaka aukist líttillega, eða um 0,2 prósentustig. Aftur á móti hefur hlutfall starfandi lækkað um 1,2 prósentustig.

Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, desember 2019 – Óleiðrétt mæling

Tafla 1. Vinnumarkaður í desember — óleiðrétt mæling
Öryggisbil Öryggisbil Öryggisbil
 2017 (±95%)2018 (±95%)2019 (±95%)
Alls 16–74 ára
Atvinnuþátttaka 81,8 2,6 79,6 2,5 79,8 2,9
Hlutfall starfandi 79,3 2,8 78,5 2,6 77,3 2,6
Atvinnuleysi 3,0 0,9 1,4 0,9 3,2 1,1
Vinnustundir 37,6 1,5 36,2 1,3 37,6 1,0
Vinnuafl 201.700 6.400 201.600 6.300 207.200 5.300
Starfandi 195.600 6.800 198.800 6.500 200.700 4.900
Atvinnulausir 6.100 2.900 2.800 1.800 6.700 1.000
Utan vinnumarkaðar 44.900 2.100 51.700 2.400 52.600 2.100
Áætlaður mannfjöldi 246.600 253.300 259.700

Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting
 júl.19ágú.19sep.19okt.19nóv.19des.19
Alls 16–74 ára
Atvinnuþátttaka 80,5 80,5 80,9 81,1 80,5 80,7
Hlutfall starfandi 77,4 77,3 77,9 78,1 77,4 77,6
Atvinnuleysi 3,4 4,4 3,6 3,4 4,1 3,9
Vinnustundir 39,5 40,1 40,1 40,4 40,3 39,9
Vinnuafl 208.300 205.700 208.100 210.200 205.800 209.100
Starfandi 199.700 196.500 200.500 202.800 198.200 202.200
Atvinnulausir 6.700 8.900 6.800 7.100 7.100 7.300
Utan vinnumarkaðar 48.200 51.100 49.200 47.500 52.600 49.700
Áætlaður mannfjöldi 256.300 256.800 257.300 257.900 258.400 258.900

Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétt leitni
 júl.19ágú.19sep.19okt.19nóv.19des.19
Alls 16–74 ára
Atvinnuþátttaka 80,7 80,7 80,8 80,8 80,7 80,7
Hlutfall starfandi 77,7 77,6 77,8 77,8 77,7 77,6
Atvinnuleysi 3,6 3,6 3,7 3,7 3,7 3,8
Vinnustundir 39,9 40,0 40,1 40,2 40,2 40,1
Vinnuafl 208.000 208.000 208.200 208.400 208.600 208.900
Starfandi 199.300 199.300 200.000 200.800 201.100 201.200
Atvinnulausir 7.100 7.300 7.400 7.300 7.300 7.200
Utan vinnumarkaðar 48.500 49.000 49.200 49.500 49.700 49.800
Áætlaður mannfjöldi 256.300 256.800 257.300 257.900 258.400 258.900

Um gögnin
Vinnumarkaðsrannsóknin í desember 2019 nær til fjögurra vikna, frá 1.desember 2019 til 4. janúar 2020. Í úrtak völdust af handahófi 1.926 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir, eða reyndust búsettir erlendis, var nettóúrtakið 1.880 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.136 einstaklingum og jafngildir það 60,7% svarhlutfalli.

Rétt er að benda á að mánaðartölur fyrir 2. og 3. ársfjórðung 2019 hafa núna verið leiðréttar

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.