Atvinnuleysi var 3,3% í desember 2022 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,8% og hlutfall starfandi 77,2%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi lækkaði um 1,6 prósentustig á milli mánaða og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi dróst saman um 0,4 prósentustig. Leitni árstíðaleiðrétts atvinnuleysis var stöðug í 3,8% síðustu sex mánuði á meðan leitni hlutfalls starfandi jókst um 0,5 prósentustig.
Án árstíðaleiðréttinga, voru 216.300 (±7.500) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í desember 2022 sem jafngildir 78,1% (±2,7) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 209.700 (±6.000) starfandi og 6.600 (±2.600) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 75,7% (±2,9) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 3,1% (±1,2). Samanburður við desember 2021 sýnir að atvinnuleysi dróst saman um 1,3 prósentustig á milli ára á sama tíma og hlutfall starfandi jókst um 1,1 prósentustig.
Áætlað er að 17.400 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) í desember 2022 sem jafngildir 7,8% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 38,1% atvinnulausir, 26,4% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 4,5% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 31,0% vinnulitlir (starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira). Slaki á vinnumarkaði hefur dregist saman um 4,6 prósentustig á milli ára samanborið við desember 2021. Leitni árstíðaleiðrétts slaka hefur dregist lítillega saman síðustu sex mánuði eða um 1,1 prósentustig.
Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðum þar sem tölur eru námundaðar að næsta hundraði.
Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir desember 2022 ná til fimm vikna tímabils frá 28. nóvember til og með 1. janúar 2023. Í úrtak völdust af handahófi 1.944 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.902 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.046 einstaklingi sem jafngildir 55,0% svarhlutfalli.
Vakin er athygli á því að framvegis verður mánaðarleg útgáfa um vinnumarkað gefin út sem uppfærsla á talnaefni en ekki sérstök frétt. Umfjöllun um mánaðarlegar breytingar á vinnumarkaði verður hluti af fréttum sem eru birtar ársjórðungslega um vinnumarkaðinn.