Í desember 2024 voru 9.200 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 3,9%, hlutfall starfandi var 78,2% og atvinnuþátttaka 81,4%.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 1,2 prósentustig á milli mánaða. Hlutfall starfandi hækkaði um 0,7 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 1,8% prósentustig. Mælt atvinnuleysi í desember var 3,8%, mæld atvinnuþátttaka 79,8% og hlutfall starfandi var samkvæmt mælingu 76,7%.