Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 4,2% í desember 2025. Fjöldi atvinnulausra var um 9.800. Hlutfall starfandi var 76,0%, sem samsvarar tæplega 221.900 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 79,3% eða um 231.700 manns á vinnumarkaði.
Samanborið við sama mánuð 2024 jókst atvinnuleysi um 0,5 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 1,1 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 0,7 stig.
Eftir árstíðaleiðréttingu mælingarinnar fyrir desember 2025 mældist atvinnuleysi 4,5%. Árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 76,9% og atvinnuþátttaka 80,5%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 2,7 prósentustig á milli nóvember og desember, hlutfall starfandi hækkaði um 0,3 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 1,9 prósentustig.