TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 26. FEBRÚAR 2025

Í janúar 2025 voru 11.300 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum Vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 4,8%, hlutfall starfandi var 78,1% og atvinnuþátttaka 82,0%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um eitt prósentustig á milli mánaða. Hlutfall starfandi lækkaði um 0,7 prósentustig en atvinnuþátttaka jókst lítillega eða um 0,1% prósentustig. Mælt atvinnuleysi í janúar var 5,2%, mæld atvinnuþátttaka var 82,0% og hlutfall starfandi var samkvæmt mælingu 77,8%.

Í byrjun febrúar birti Hagstofan greinargerð um endurskoðun á mannfjölda í Vinnumarkaðsrannsókn aftur til ársins 2011 og hafa nú allar tölur rannsóknarinnar mánaðar-, ársfjórðungs- og árstölur verið uppfærðar til samræmis við endurskoðaðan mannfjölda. Sjá greinargerð um endurmat á mannfjölda í Vinnumarkaðsrannsókn.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.