TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 25. FEBRÚAR 2026

Í janúar 2026 voru 17.400 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 7,3%, hlutfall starfandi var 75,7% og atvinnuþátttaka 81,6%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 2,8 prósentustig á milli desember 2025 og janúar 2026, hlutfall starfandi lækkaði um 1,1 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 1,1 prósentustig.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 8,3% í janúar 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 19.700, hlutfall starfandi var 74,5%, sem samsvarar tæplega 217.900 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 81,2% eða um 237.600 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst mælt atvinnuleysi um 3,1 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 3,3 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,8 stig. Leitni árstíðaleiðréttingar á atvinnuleysi sýnir sambærilega þróun, síðustu tólf mánuði hefur það aukist úr 3,8% í janúar 2025 í 5,3% í janúar 2026.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.