Samkvæmt mælingu Vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 3,2% í júlí 2025. Fjöldi atvinnulausra var um 7.800. Hlutfall starfandi var 80,3%, sem samsvarar tæplega 233.000 einstaklingum og atvinnuþátttaka var 83%, eða um 240.800 manns á vinnumarkaði.
Samanborið við sama mánuð 2024 jókst atvinnuleysi um 1,3 prósentustig, hlutfall starfandi dróst saman um 3,5 prósentustig og atvinnuþátttakan dróst saman um 2,5 stig.
Eftir árstíðaleiðréttingu mælingarinnar fyrir júlí 2025 var atvinnuleysi 4,0%. Árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 78,2% og atvinnuþátttaka 81,4%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 1,3 prósentustig á milli júní og júlí. Hlutfall starfandi á milli þessara mánaða dróst saman um 1,3 prósentustig og atvinnuþátttaka lækkaði um 0,2 prósentustig.