TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 08. ÁGÚST 2024

Í júní 2024 voru 7.700 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 3,2%. Hlutfall starfandi var 79,0% og atvinnuþátttaka var 81,6%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,8 prósentustig á milli mánaða og hlutfall starfandi lækkaði um eitt prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði lítillega eða um 0,4 stig.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.