TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 07. ÁGÚST 2025

Í júní 2025 var atvinnuleysi 2,8% samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 80% og atvinnuþátttaka 82,3%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 0,3 prósentustig á milli mánaða. Hlutfall starfandi jókst um 1,4 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 1,2 prósentustig.

Samkvæmt mælingu voru 5.400 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára atvinnulausir í júní og mælt atvinnuleysi var 2,2%, atvinnuþátttaka 85,1% og hlutfall starfandi var samkvæmt mælingu 83,3%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.