Í júní 2026 var fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára 11.500, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 5%, hlutfall starfandi var 74,4% og atvinnuþátttaka 78,4%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 0,6 prósentustig á milli maí og júní 2026, hlutfall starfandi lækkaði um 1,9 prósentustig og atvinnuþátttaka dróst saman um 2,4 prósentustig
Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi 3,9% í júní 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 9.200. Hlutfall starfandi var 77,9%, sem samsvarar tæplega 228.700 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 81% eða um 237.900 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 1,7 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 5,4 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 4,1 prósentustig.