Í maí 2024 voru 5.800 einstaklingar atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra einstaklinga var 2,5%, hlutfall starfandi var 80,0% og atvinnuþátttaka 82,0%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,2 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi stóð nánast alveg í stað og atvinnuþátttaka minnkaði lítillega, eða um 0,8 stig.