Í maí 2026 var fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára 13.100, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 5,6%, hlutfall starfandi var 76,5% og atvinnuþátttaka 81,1%. Á heildina litið urðu nánast engar breytingar á niðurstöðunum milli mánaða, þó hlutfall starfandi og atvinnuþáttaka hækkaði lítillega.
Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi 8,3% í maí 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 19.800. Hlutfall starfandi var 74,8%, sem samsvarar tæplega 219.300 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 81,6% eða um 239.100 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 3,8 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 3,8 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 0,7 prósentustig.
Á vormánuðum er algengt að ungu fólki á vinnumarkaði fjölgi þegar það hefur leit að sumarstörfum. Það má sjá í tölum um maí þegar atvinnuleysi fólks á aldrinum 16 – 24 ára mældist 23,8% samanborið við 5,1% hjá 25 ára og eldri.