FRÉTT VINNUMARKAÐUR 22. DESEMBER 2021

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 4,2% í nóvember 2021 samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands sem er lækkun um 1,2 prósentustig frá fyrri mánuði. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 80,1% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 76,7% sem var aukning um 1,2 prósentustig. Árstíðaleiðrétt leitni atvinnuleysis hefur haldist stöðug síðustu þrjá mánuði í 5,1% en dregist saman um 0,7 prósentustig síðustu sex mánuði frá júní 2021. Árstíðaleiðrétt leitni hlutfalls starfandi hefur aukist um 1,9 prósentustig síðustu sex mánuði.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknarinnar, án árstíðaleiðréttingar, er áætlað að 210.200 (±7.900) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára hafi verið á vinnumarkaði í nóvember 2021 sem jafngildir 78,7% (±2,9) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 203.100 (±5.600) starfandi og 7.100 (±2.700) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 76,0% (±2,8) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 3,4% (±1,3). Starfandi unnu að jafnaði 35,3 (±1,3) stundir á viku í nóvember 2021. Samanburður við nóvember 2020 sýnir að atvinnuleysi dróst saman um 3,8 prósentustig á milli ára og hlutfall starfandi jókst um 5,8 prósentustig.

Atvinnuleysi ungs fólks á aldrinum 16-24 ára mældist 4,1% í nóvember 2021. Áætlað er að 1.200 einstaklingar hafi verið atvinnulausir í þessum hóp og 11.400 utan vinnumarkaðar. Samanburður við síðustu ár sýnir að atvinnuleysi í hópi ungs fólks hefur aldrei mæst lægra í nóvembermánuði frá upphafi samfelldrar vinnumarkaðsrannsóknar 2003. Atvinnuleysi ungs fólks dróst saman um 5 prósentustig á milli ára og hlutfall starfandi jókst um 14,2 prósentustig.

Í nóvember 2021 er áætlað að 26.300 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) sem jafngildir 12% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 27% atvinnulausir, 25,3% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 6,2% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 41,4% vinnulitlir (starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira). Samanburður við nóvember 2020 sýnir að hlutfall þeirra sem hafa óuppfyllta þörf fyrir atvinnu hefur lækkað um 4,3 prósentustig á milli ára. Árstíðaleiðrétt leitni slaka hefur haldist stöðug síðustu sex mánuði.

Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðum þar sem tölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir nóvember 2021 ná til fjögurra vikna frá 1. til og með 28. nóvember. Í úrtak völdust af handahófi 1.529 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.486 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 955 einstaklingum sem jafngildir 64,3% svarhlutfalli.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.