FRÉTT VINNUMARKAÐUR 21. DESEMBER 2022

Atvinnuleysi var 4,6% í nóvember 2022 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 81,6% og hlutfall starfandi 77,9%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hækkaði um 1,7 prósentustig á milli mánaða og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi jókst um 0,3 prósentustig. Leitni árstíðaleiðrétts atvinnuleysis jókst um 0,1 prósentustig síðustu sex mánuði á meðan leitni hlutfalls starfandi jókst um 0,4 prósentustig.

Án árstíðaleiðréttinga, voru 224.200 (± 7.100) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í nóvember 2022 sem jafngildir 81,2% (± 2,3) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 215.100 (± 6.100) starfandi og 9.100 (± 3.500) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,9% (± 2,8) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 4,1% (± 1,6). Samanburður við nóvember 2021 sýnir að atvinnuleysi jókst um 0,7 prósentustig á milli ára á sama tíma og hlutfall starfandi jókst um 1,9 prósentustig.

Áætlað er að 25.100 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) í nóvember 2022 sem jafngildir 10,8% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Slaki á vinnumarkaði hefur dregist saman um 1,2 prósentustig á milli ára samanborið við nóvember 2021. Leitni árstíðaleiðrétts slaka hefur dregist lítillega saman síðustu sex mánuði eða um 0,2 prósentustig.

Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðum þar sem tölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir nóvember 2022 ná til fjögurra vikna frá 31. október til og með 27. nóvember. Í úrtak völdust af handahófi 1.540 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.502 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 881 einstaklingi sem jafngildir 58,7% svarhlutfalli.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.