Í nóvember 2024 voru 6.400 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 2,8%, hlutfall starfandi var 77,2% og atvinnuþátttaka 79,4%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 0,4 prósentustig á milli mánaða. Hlutfall starfandi lækkaði um 2,2 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 2,6% prósentustig. Mælt atvinnuleysi í nóvember var 2,4%, mæld atvinnuþátttaka var 78,0% og hlutfall starfandi var samkvæmt mælingu 76,1%.