TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 23. DESEMBER 2025

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 6,5% í nóvember 2025. Fjöldi atvinnulausra var um 15.200. Hlutfall starfandi var 74,7%, sem samsvarar tæplega 217.900 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 79,9% eða um 233.100 manns á vinnumarkaði.

Samanborið við sama mánuð 2024 jókst atvinnuleysi um 4,3 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 1,9 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 1,6 stig.

Eftir árstíðaleiðréttingu mælingarinnar fyrir nóvember 2025 mældist atvinnuleysi 7,0%. Árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 75,5% og atvinnuþátttaka 81,1%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 2,4 prósentustig á milli október og nóvember, hlutfall starfandi lækkaði um tvö prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 0,1 prósentustig.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.