Atvinnuleysi var 2,8% í október 2022 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,8% og hlutfall starfandi 77,5%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 0,8 prósentustig á milli mánaða á meðan árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi jókst um 0,9 prósentustig. Leitni árstíðaleiðrétts atvinnuleysis hélst stöðugt síðustu sex mánuði á meðan leitni hlutfalls starfandi dróst saman um 0,2 prósentustig.
Án árstíðaleiðréttinga, voru 218.100 (±7.500) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í október 2022 sem jafngildir 79,3% (±2,7) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 212.300 (±6.100) starfandi og 5.800 (±2.800) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,1% (±2,9) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 2,7% (±1,3). Samanburður við október 2021 sýnir að atvinnuleysi dróst saman um 2,8 prósentustig á milli ára á sama tíma og hlutfall starfandi jókst um 2,4 prósentustig.
Áætlað er að 19.500 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) í október 2022 sem jafngildir 8,7% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Slaki á vinnumarkaði hefur dregist saman um 5,1 prósentustig á milli ára samanborið við október 2021. Árstíðaleiðrétt leitni slaka hefur dregist saman um 0,2 prósentustig síðustu sex mánuði.
Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðum þar sem tölur eru námundaðar að næsta hundraði.
Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir október 2022 ná til fjögurra vikna frá 3. október til og með 30. október. Í úrtak völdust af handahófi 1.522 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.474 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 899 einstaklingum sem jafngildir 61,0% svarhlutfalli.