TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 26. NÓVEMBER 2025

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 4,4% í október 2025. Fjöldi atvinnulausra var um 10.300. Hlutfall starfandi var 77,3%, sem samsvarar tæplega 225.200 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 80,8% eða um 235.500 manns á vinnumarkaði.

Samanborið við sama mánuð 2024 jókst atvinnuleysi um 1,5 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 2,3 prósentustig og atvinnuþátttaka dróst saman um 1,1 stig.

Eftir árstíðaleiðréttingu mælingarinnar fyrir október 2025 mældist atvinnuleysi 4,4%. Árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 78,2% og atvinnuþátttaka 81,8%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,5 prósentustig á milli september og október, hlutfall starfandi hækkaði um 0,2 prósentustig og atvinnuþátttaka hækkaði um 0,6 prósentustig.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.